Rökkur - 01.10.1940, Side 1
EÖKKUR
ALÞÝÐLEGTMÁNAÐARRIT
STOFNAÐ í WINNIPEG 1922
XVII. árg. Reykjavík 1940. 10. hefti.
Berr hard Newman:
FLÓTTINN.
ÞaS var tilviljun ein, aö eg gerðist njósnari.
Og þannig er það fyrir flestum, sem fara út á
þá braut.
Kannske var ætterni mínu um að kenna. Fað-
ir minn var bóndi í Leicestershire. Hann hafði
gengið að eiga stúlku frá Elsass. Þetta var 30 ár-
um fyrir Heimsstyröldina, þegar Elsass var —•
eins og allir vita — hluti af Þýskalandi. Mentun
mín var sú, að eg gekk í mentaskóla og stundaði
nám í Cambridge-háskólanum, en eg talaði
þýsku eins og innfæddur maður, — ekki af því,
að eg lærði hana svo vel í skólum, heldur vegna
þess, að eg lærði hana við kné móður minnar.
Þegar styrjöldin braust út var eg orðinn leikar1
og gekk mæta vel. Eg fór undir eins í herinn og
var gerður að hrað-boðbera í hernum, er eg var
kominn til Frakklands, og lilaut svo foringja-
stöðu í fótgönguliðsherdeild. — Tilviljunin, sem
réði því, að eg gerðist njósnari, átti sér stað um
jólaleytið 1914. Kannske má segja, að eg hafi
liaft hepnina með mér, því að annars hefði kann-
ske farið eins fyrir mér og svo mörgum undir-
lautinöntum í þá daga, að eg hefði brátt verið
vafinn í teppi, hulinn moldu, og trékross settur
yfir.