Rökkur - 01.10.1940, Page 3

Rökkur - 01.10.1940, Page 3
R 0 K K U R 147 svo, að viðgerð hefði tekið einn sólarhring, hefði það getað haft úrshtaáhrif, einkanlega ef þetta hefði tekist daginn sem orustan byrjaði. Eg stakk upp á þessu — og mér var falið að sjá um það. Eg bjó mig vandlega undir þennan fyrsta leið- angur minn aftur fyrir víglínu Þjóðverja. Eg fékk mér þýskan einkennisbúning og var settur í bækistöðvar, þar sem fangar voru geymdir. Eg þóttist vera þýskur fangi og kom mér í kynni við mann sem var líkur á vöxt og eg. Hann hét Ernst Karkeln. Hann talaði mikið um sjálfan sig. Því ekki? Var eg ekki fangi eins og liann. Hann sýndi mér ljósmynd af unnustu sinni og lýsti fyrir mér félögum sínum í her- deildinni. Þar sem eg var áður leikari tókst mér að hafa þau not af samvistunum við hann, að eftir þrjár vikur var eg ekki lengur Bernhard Newman kapteinn, heldur Ernst Karkeln lið- þjálfi, í 13. herdeildinni frá Bayern. Skjöl mín —- fölsuð eins og gefur að skilja — voru í besta lagi. Auk þess var eg með persónuleg skilriki Ernst Karkeln. Áform mitt var að segja, að eg hefði flúið frá Bretum, og væri að koma úr „leyfi“. Aðfaranótt 21. sept, 1915 var flogið með mig yfir víglínu Þjóðverja, og flugmaðurinn Palmer að nafni, lenti af mikilli leikni á ber- wæði skamt frá Bois-Bernard (Bernard- skógi). Við kvöddumst í skyndi, komum okkur saman um hvenær hann kæmi eftir mér. Og eftir nokkrar mínútur var eg einn — njósnari fyrir aftan herlínu Þjóðverja. Eg hafði fengið nöfn þriggja manna í Lens, sem voru umboðsmenn Breta. Einn þeirra kom mér fyrir í húsi járnbrautarstarfsmanns nokk- urs. Dóttir hans, Suzanne, var gáfuð og skarp- skygn í hetra lagi -— sannast að segja var hún svo skarpskygn, að hún komst þegar í stað að því, að eg var njósnari, af þvi að eg bar ekki *

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.