Rökkur - 01.10.1940, Síða 7

Rökkur - 01.10.1940, Síða 7
R O Ií K U R 151 orðið að geyma hana í bakpoka mínum, en hún var nægilega aflmikil til þess að valda spreng- ingu, sem beygði teinana svo, að vagnarnir hent- ust á hhðina og yfir á liina brautina, svo að nú var ógerlegt* fyrir lestina að fara um hvoruga brautina, fvrr en búið var að hreinsa til á þeim báðum. Nú nálgaðist hin lestin. Mundi verða unt að stöðva hana í tíma? Nei, það var óger- legt. Hún var að eins i 100 metra fjarlægð — og rakst eimreið hennar á vagnana, sem oltið höfðu yfir brautina, með allmiklum hraða, og voru nú margir eyðilagðir vagnar á báðum brautunum og alt í uppnámi. Algert öngþveiti var ríkjandi í bili. Hermenn ruddust að úr öllum áttum. Og eg slóst í hóp þeirra sem fóru á vettvang. Það var skynsam- legast fyrir mig að láta sem ekkert væri — og auk þess gat eg þá betur séð hversu mér hafði hepnast að inna hlutverk mitt af hendi. Eg gat að minsta kosti ekki látið Þjóðverja finna mig í skurðinum. Áður en eg komst á staðinn þar sem herflutn- ingalestin hafði hlaupið af sporinu og nokkurir vagnanna ultu út af varð ægileg sprenging. Eg hentist aftur á bak og eg var heppinn að það var mjúklent þar sem eg var. Þrátt fyrir það blæddi úr mér á nokkurum stöðum en síðar kom í Ijós, að eg liafði ekki særst alvarlega. Hvað liafði gerst? Það kom brátt í ljós. Eim- reið lierflutningalestarinnar liafði ætt á miðjan vagn, sem var fullur af skotfærum, og tveir eða þrír járnbrautarvagnar með þungum fallbyssu- kúlum sprungu i loft upp. Eg liefði átt að fagna yfir þessu, því nú var svo komið, að herflutn- ingar og hergagna um brautirnar hlutu að stöðvast meira en sólarhring. Þótt hvorki skorti menn eða tæki hlaut það að verða viku verk að hreinsa svo til þarna og framkvæma viðgerðir,

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.