Rökkur - 15.07.1941, Side 4

Rökkur - 15.07.1941, Side 4
132 R Ö K K U R sem oft koma við sögu á Erm- arsundi og víðar. —o— JJ in stærsta eyja sem gerð er af mannahöndum er í San Franciscoflóa. Hún var gerð í þeim tilgangi að halda á henni heimssýningu, sem stóð sumurin 1939 og 1940. Eyjan er rúmlega 300 ekrur, en hún tekur yfir 400 ekrur af botni San Francisco-flóa. Fékk borgin þenna hluta botns flóans að leigu frá Cahforníu-ríki! Nú hefir Bandarikjafloti tek- ið eyjuna i sínar hendur og á hún að vera hækistöð herskipa og flugvéla. Margar byggingar voru reistar á eyjunni vegna sýningarinnar, sem að ofan get- ur og mun flotinn geta notað einar 17 þeirra. Þarna á að æfa 5000 menn í einu — í flugi, en ekki i sjó- mennsku, því að það er fluglið flotans, sem hefir fengið eyjuna. Verksm. Fords eru byrjað- ar framleiðslu á flugvéla- hreyflum, sem er að öllu leyti framleiðslaverkfræðinga þeirra, sem Ford hefir í þjónustu sinni. Hreyfillinn er 12 cylindra, vökvakældur og mun vera mjög góður, því að herinn rak mjög á eftir að framleiðsla hans i stór- um stíl væri hafin þegar i stað. Hreyfillinn framleiðir 1800— 2000 hestöfl með 3600 snúning- um á mínútu, en hann vegur minna en eitt pund á hvert hest- affl. Léttasti hreyfillinn, sem í notkun er í Bandaríkjaliernuni, vegur 1.2 pund á hestafl og er það nokkur munur, þegar hest- öflin skipta hundruðum og jafn- vel þúsundum. Hinn aukni kraftur hreyfilsins stafar af þrýstingnum, sem alltaf er í loftrásinni til vélarinnar, hvort sem flogið er hátt eða lágt. Er þrýstingurinn framleiddur af útblæstri hreyfilsins. Það er alveg nýtt fyrirbrigði, að hafa aukinn þrýsting á hreyflinum, þegar flogið er niður við jörð, en það evkur styrkleika lians um 100%. Venjulegar Ford-aðferðir til fjöldaframleiðslu á að nota við framleiðslu þessa hreyfils. Ein aðferðin er sú að steypa cyl- indrana á annan liátt en áður. Tekur það þriðjung hins fyrri tíma með nýju aðferðinni. h.

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.