Rökkur - 15.07.1941, Qupperneq 13
ROKKUR
141
/
Allan þenna dag — 20. maí
-—- var barizt. Flugvélar höfðu
sig lítið í frammi, því að Þjóð-
verjar urðu fyrst að vita um
stöðu manna sinna. Engar okk-
ar flugvéla voru uppi. Þær tvær
síðustu voru eyðilagðar um
morguninn og eftir það flaug
engin brezk flugvél upp frá
Krít.
En fyrsta daginn urðum, við
þess ekki varir, því að þetta var
orusta manna gegn mönnum.
Þegar skyggja tók gátu foringj-
arnir tilkynnt: „Öllu er óhætt.“
Það var alveg rétt. Umhverfis
Canea hafði árásin misheppnast
algerlega. Tveir hópar af þrem,
sem lentu umhverfis borgina,
voru strádrepnir.
gVIFFLUGURNAR, er höfðu
lent á Alikituri höfðu lent
á stórgrýti, sem ekki sást á loft-
Ijósmvndum. Mennirnir i fjór-
um þeirra höfðu beðið bana eða
voru svo á sig komnir, að auð-
velt var að kom,a þeim fyrir
kattarnef. Aðeins dreifðir flolck-
ar, sem þjáðust af þorsta, léku
enn lausum hala. Það voru litl-
ar líkur til þess, að þeir gæti
hlýtt skipuninni, sem fannst a
einum þeirra: „Sækið til borg-
arinnar og takið alla þá gisla,
sem þið getið.“
Annar hópur liafði komið
niður hjá sjúkra-tjaldbúðunum
miðja vegu milli Maleme og
strandar. Þeir tóku hina særðu
og létu þá ganga á undan til að
skýla sér fyrir kúlnahríðinni.
Þannig náðu þeir Galatos-þorpi
—á leiðinni til Maleme — en
eftir hádegið gerðum við gagn-
áhlaup og náðum Galatos aftur,
ásamt með hinum særðu, og
hreinsuðum til þarna.
Aðeins innan um olivutrén.
13 km. í suðvestur af borginni,
var hópur fallhlífarhermanna,
sem gat ógnað borginni, en
gegn þeim var nægt lið og vel
það.
í Maleme gerðu Maoriar gagn-
áhlaup um nóttina og hreins-
uðu flugvöllinn alveg. í Retimo
gerðu Ástralíumenn og Krít-
verjar byssustingjaáhlaup og
tókst að uppræta andstæðing-
ana á öllum nema tveim stöð-
um. Bæði í Heraklion og Re-
timo höfðuro við flugvellina á
okkar valdi.
P| N svo rann miðvikudagur
upp og þann dag kom það,
sem átti að færa Þjóðverjum
lokasigurinn — flugvélar. Því
að nú hafði aðstaðan skýrzt svo,
að þeir gátu notað flugvélar sín-
ar gegn oss.
í morgunsárinu fylltist loftið
af orustu- og sprengjuflugvél-