Rökkur - 01.11.1942, Page 4

Rökkur - 01.11.1942, Page 4
244 RÖKKUB fyrirskipunum. Loks var tekið fram, að Kristóbal Kólon væri heimilað sigla skipum sínum úr höfn, er honum sýndist. Þetta kom eins og skrugga úr heiðskíru lofti yfir íbúa hinnar friðsælu smaborgar. Menn spurðu: Hver er þessi Kristóbal Kól- on? Hvaðan var hann? Og — hver var tilgangurinn? Hvert átti hann að sigla skipunum? Menn spurðu Martin Pinzon, vellauð- ugan kaupmann, sem hafði auðgazt á sardínuverzlun, en vissi að jafnaði um allt, sem gerðist, en i þetta slcipti var engu fróðari en aðrir. Hann — og frændur hans mýmargir — þóttust að minnsta kosti ekkert vita. Daginn eftir skoðaði Kristóbal Kólon, ásamt bæjarráðinu í Palos, allar snekkjur í höfninni, til þess að velja þær traustustu og sjófærustu. Kristóbal Kolon skýrði nú frá því, að ekkert hefði verið látið uppskátt um ferðina, nema að fyrirskipun hefði verið gefin um að sigla beint í vestur. — Menn voru ráðnir á skipin til tveggja mánaða og íbúar Palos skyldu bera allt tjón, sem fyrir kynni að koma í leiðangrinum. Þetta þótti mönnum harðir kostir sem vonlegt var og menn létu í Ijós, að konungurinn gæti ekki krafizt svo mikils af hinum dyggu og iðnu ibúum borgarinnar. En það reyndist tilgangslaust að spyrja nokkurs frekara. Orða- lag hinnar konunglegu tilskipunar var skýrt og ákveðið. Menn reyndu með ýmsu móti að komast hjá að fara í leiðang- urinn — út í blákalda óvissuna. Af þessu leiddi að undirbúningur allur tók miklu lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Þegar margar vikur voru liðnar tilkynnti Martin Pinzon, að hann og bræður hans myndu taka þátt í leiðangrinum, og enginn þyrfti að ala neinar áhyggjur. Það yrði valinn maður i hverju rúmi og stjórn leiðangursins falin reyndum, dugandi manni. Þetta dró mjög úr kvíða manna. Menn ályktuðu sem svo, að Mar- tin Pinzon mundi ekki hætta á neitt, nema mikils auðs væri von, og létu nú margir bindast af gróðafíkn. Nú fór því fjarri, að Kristófer Kolumbus sæktist eftir því, að slikur maður sem Martin Pinzon tæki þátt i leiðangrinum, en það var ekki lagt nóg úr fjárhirzlu konungs til fararinnar, og Kolumbus sjálfur varð að leggja af mörkum áttunda hluta útgjaldanna, en Martin Pinzon bauðst til að leggja fram fé það, sem á skorti, gegn þvi að hann fengi hlutdeild í ágóðanum. Kol-

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.