Rökkur - 01.11.1942, Qupperneq 11
«OKKUR
251
Vélsmiðjan Héðinn reisir stór-
byggingu í Vesturbænum.
Velsrmðjan Héðinn, sem nú hefir starfað í tuttugu ár, er að
koma sér upp stórbyggingu í Vesturbænum fyrir framtíðar-
starfsemi sína. Og nú, er félagið er nýbúið að starfa í 20 ár (1.
nóv.) er þessi bygging svo vel á veg komin, að starfsemin verð-
ur sennilega flutt þangað að mestu um áramótin næstu. Bygg-
ing þessi stendur þar sem Seljavegur sameinast Mýrargötu.
Hún er 80 metrar á lengd og liggur meðfram götubrún.
Vélsmiðjan Héðinn hefir til
þessa liaft aðalbækistöð sína í
Miðbænum, en þar er fyrir
löngu orðið of þröngt um hana,
og liefir orðið að dreifa henni.
koma upp birgðageymslu ann-
arstaðar og verksmiðju. Eru
þar framleidd kæliáhöld í fyrsti-
hús, en Héðinn hefir tekið að
sér að koma upp mörgum
frystihúsum, og smíðar vél-
smiðjan sjálf flestar vélar, sem
í þeim eru notuð.
Það voru þeir Bjarni Þor-
steinsson vélfræðingur og
Markús Ivarsson vélstjóri, sem
stofnuðu Héðin, Keyptu þeir
járnsmiðju Bjarnhéðins heitins
Jónssonar við Aðalstræti og hef-
ir aðalstarfsemin jafnan verið
þar, unz breyting verður á, þeg-
ar hin nýja bygging er fullgerð.
Héðinn hefir lengi verið eitt
af stórfyrirtækjum bæjarins og
vinna að jafnaði á hans vegum
upp undir 150 manns.
Líkan af vei-ksmiðjubyggingunni.