Rökkur - 01.11.1942, Page 16

Rökkur - 01.11.1942, Page 16
256 ROKKUB fært að klífa þá, en það var erf- iðléikum bundið. Að kveldi þessa dags, er dimmt var orðið, og þeir iiöfðu hvílt sig af nýju og sátu reykj- andi við bálið, kvörtuðu þeir um hita. Þeim kom saman um, að frostlaust væri orðið - - í fyrsta skipti á misseri. „Enginn hefir heyrt getið um pardusdýr svona norðarlega,“ sagði Tom Daw og sló þar með út í aðra sálma. „Skalli kallaði það „cougar“. En eg skaut mörg þeirra í Gurryhéraði í Oregon. Eg er þaðan og við kölluðum þau pardusdýr. Að minnsta kosti er það sá stærsti „köttur“, sem eg hefi nokkurn tíma séð. Risaköttur — víst er um það. Hvernig stendur nú á því, að skepnan fer svona langt frá stöðvum, esm kalla mætti heimastöðvar hennar?“ Lindsay svaraði ekki. Iíink- aði aðeins kolli. — Skinnsokkar hans voru liengdir upp til þerris á spýtum nálægt bálinu. Gufumekkina lagði upp úr skinnsokkunum. Hundarnir hrokkinhærðu höfðu lagzt í skafli og móktu. Ekkert rauf þögnina nema þegar snarkaði i eldinum. — Lindsay hafði mókt. Hann rauk upp með andfælum og starði á Tom, sem kinkaði kolli til hans og starði á móti. Þeir lögðu allt í einu við hlustimar. Úti í fjarskanum heyrðist háv- aði, eins og þegar jarðhrun byrjar í fjallshlið. Svo jókst hávaðinn allt i einu og eftir það var stöðugur skruðningur. Það var eins og hávaðinn færð- ist æ nær. Það var eins og þús- und jötnar riðu um fjöllin, eins og eitthvert reginafl sveigði trén til jarðar, hristi þau, svo að titringur færi um þau niður í smæstu rótaranga. Þeir vissu vel hvað þetta var, Tom Daw og Lindsay. Heit stinningsgola feykti upp neistum og ösku úr hálinu. Hundarnir vöknuðu, settust upp og ýlfruðu. „Chinook,“ sagði Tom Daw. „Gilkvíslin hefir rutt sig, geri eg ráð fyrir,“ sagði Lind- say. Framh. Útgefandi: Axel Thorsteinson. Afgreiðslu Rökkurs annast egfyrst um sinn heima hjá mér, á Rauðarárstíg 36, sími 4558. — Við kl. 1—3 virka daga. — FÉLAGSPRENTSMIÐJAN h.f.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.