Fréttablaðið - 09.02.2023, Side 2

Fréttablaðið - 09.02.2023, Side 2
6,1 milljón króna kostaði bjórkælirinn á Eið- istorgi. Tímamótunum fagnað Blásið var til veislu í Vin, dagsetri fyrir fólk með geðraskanir, í tilefni afmælis starfseminnar í gær. Um tíma virtist sem svo að það ætti að leggja niður at- hvarfið á síðasta ári en Reykjavíkurborg dró í land. Helsta hlutverk Vinjar er að draga úr félagslegri einangrun og skapa vinalegt umhverfi fyrir gesti setursins og heimsækja hundrað einstaklingar Vin reglulega. Fréttablaðið/Valli Ylvolgur bjór bíður gesta og gangandi á Eiðistorgi en vínkælirinn sem þar átti að vera og koma upp árið 2021 er ekki enn kominn í gagnið. Fréttablaðið/Ernir Vínbúðin á Eiðistorgi er ein fárra vínbúða sem selja ylvolgan bjór og vín. Unnið er að lausn sem gæti virkað fyrir alla, bæði íbúa og gesti Vínbúðarinnar. benediktboas@frettabladid.is Samfélag „Við erum að vinna með leigusala og húseigendum að lausn og vonum að sjálfsögðu að kælir verði kominn í gang sem fyrst,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, en ekki er enn hægt að fá kaldan bjór í Vín- búðinni á Eiðistorgi. Saga bjórkælisins sem var settur upp í miklum endurbótum á búð- inni í september 2021 hefur verið lengi til umræðu og umfjöllunar. Íbúar á Eiðistorgi kvörtuðu undan hávaða frá kælibúnaði og hefur ekki enn fundist lausn á því að gestir Eiðistorgs geti fengið kaldan bjór eða vín heldur aðeins bjór við stofuhita – eitthvað sem er ekki gott. „Því miður liggur endanleg lausn ekki fyrir enn þá,“ segir Sigrún. Vínbúðin á Eiðistorgi er ein fárra Vínbúða sem bjóða ekki upp á kaldan bjór í verslun sinni. Vín- búðin í Austurstræti er önnur búð sem býður ekki upp á kaldan bjór en annars er hægt að fá bjór eða hvítvín kalt út úr búð nánast hvar sem er. Vínbúðin á Eiðistorgi var endur- bætt og stækkuð árið 2021 og kælinum umdeilda komið fyrir. Í kjölfarið komu fram kvartanir frá íbúum um að það væri ónæði frá kælibúnaði. „Íbúar voru ekki mér vitanlega á móti kælinum sem slík- um heldur var ónæði vegna kæli- búnaðar mótmælt,“ segir Sigrún. Hún segir að allt sé gert til að koma kælinum í gagnið enda sé allt klappað og klárt til að stinga í samband til að kæla vörurnar sem mörgum finnst svo gott að teyga. „Allt frá þeim tíma hefur ÁTVR beðið eftir lausn frá leigusala um staðsetningu á kælibúnaði sem trufli ekki íbúa hússins,“ segir hún. Gestir Vínbúðarinnar á Eiðistorgi þurfa því að bíða áfram eftir að geta keypt sér kaldan bjór. n Seltirningar þurfa að bíða áfram eftir köldum bjór ser@frettabladid.is Reykjavík Starfsmenn á vegum verktakafyrirtækisins Ef lu tóku sýni í Vesturbæjarskóla í Reykjavík á mánudag vegna gruns um að þar leyndist mygla. Samkvæmt heimildum blaðsins munu kennarar og aðrir starfsmenn við skólann hafa kvartað undan krankleika sem þeir ætla að stafi af rakaskemmdum í húsinu. Vesturbæjarskóli var reistur um aldamótin síðustu og viðbygging við hann var tekin í notkun 2018. Ætla má að niðurstöður úr rann- sókn Ef lu liggi fyrir innan mán- aðar. n Grunur um myglu í Vesturbæjarskóla Vesturbæjarskóli var reistur um aldamótin. Mynd/daníEl rúnarsson Frá vettvangi brunans. Fréttablaðið/anton brinK lovisa@frettabladid.is félagSmÁl Smáhýsið sem kviknaði í í gærmorgun er ónýtt. Smáhýsið er staðsett úti á Granda og er í eigu Félagsbústaða. Er það hluti af þyrp- ingu húsa úti á Granda fyrir heim- ilislausa einstaklinga. Reykjavíkurborg getur ek k i gefið upplýsingar um hvort ein- staklingnum sem bjó í húsnæðinu hafi verið fundið annað húsnæði. Í svari til Fréttablaðsins kemur fram að almenna reglan sé sú að ef íbúi í félagslegu húsnæði missir skyndilega heimili sitt, svo sem eins og eftir bruna, þá sé allt kapp lagt á að koma viðkomandi í skjól og úthluta öðru húsnæði sem allra fyrst. Íbúar í smáhýsum hafa hver sinn ráðgjafa og fá stuðning VoR-teymis Reykjavíkurborgar (Vettvangs- og ráðgjafarteymi). n Smáhýsið ónýtt og íbúa komið í annað húsnæði Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR 2 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 9. FeBRúAR 2023 fiMMTUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.