Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 6
Auknar skattaálögur sem ESB er með á borðinu til varnar hnattrænni hlýnun gætu leikið millilandaflug flugfélaga grátt hér á landi og skaðað þjóðarframleiðslu verulega. Katrín Jakobsdóttir falast eftir undanþágu til að greiða ekki gjöldin. bth@frettabladid.is umhverfismál Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki vand- ræðalegt fyrir sig sem formann flokks sem kennir sig við umhverf- isvernd að hún hafi sent Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, bréf þar sem farið er fram á fríar los- unarheimildir í f lugi sem teygir sig lengra en 500 kílómetra frá Íslandi. Bréfið er viðbrögð við fyrir- huguðum breytingum ESB um aukna skattlagningu vegna losunar gróðurhúsalofttegunda í f lugi. Til- lögurnar koma sérlega illa við Ísland efnahagslega. Katrín skrifar í bréfinu að Ísland styðji markmið áætlunar ESB um að minnka losun um 55 prósent fyrir árið 2030 en segist hafa þungar áhyggjur af tillögum um losun vegna f lugs sem f lokkað er undir ETS, viðskiptakerfi ESB. „Þetta bréf snýr eingöngu að flug- samgöngum,“ segir Katrín í samtali við Fréttablaðið. „Tilgangur breyt- inganna er að beina fólki í lestir eða almenningssamgöngur í stað þess að fara í f lug. Við Íslendingar erum aftur á móti með þá sérstöðu að við getum ekki nýtt aðra samgöngu- kosti en flug frá landinu.“ Katrín segir að engar beinharðar umhverfisvænar lausnir hafi komið fram er varði f lugvélaeldsneyti í lengri f lugferðum. „Þessi aðferða- fræði bitnar því hlutfallslega verr á okkur en nokkru öðru landi.“ ETS er meginstjórntæki ESB á sviði loftslagsmála, ætlað að skapa hagrænan hvata í þeim tilgangi að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda. Ef tillögur ESB verða að veruleika gætu áhrifin orðið mjög alvarleg fyrir f lugiðnað Íslands og efnahag þjóðarinnar. Aukinn kostnaður vegna umhverfisskatta yrði íþyngj- andi fyrir f lugfélög með aðsetur á Íslandi að því er segir í bréfi Katr- ínar.  Breytingarnar skapi óhag- ræði í samkeppni flugfélaga, staða alþjóðaf lugvallarins í Kef lavík kunni að skerðast verulega og nei- kvæð áhrif orðið á tengiflug. „Sem eyja í Norður-Atlantshafi er Ísland mjög háð f lugi,“ skrifar Katrín í bréfinu sem barst forseta Þessi aðferðafræði bitnar því hlutfallslega verr á okkur en nokkru öðru landi. Katrín Jakobs- dóttir, forsætis- ráðherra Þetta eru nokkur tilvik og nokkrir einstakling- ar þar sem grunur er um vopnalagabrot. Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari 0 1.000 2.000 3.000 Ís la nd Ký pu r M al ta Sp án n Po rt úg al Bú lg ar ía G rik kl an d Rú m en ía Br et la nd Fi nn la nd U ng ve rja la nd Írl an d Be lg ía Ít al ía Li tá en Sl óv ak ía H ol la nd Pó lla nd Sv íþ jó ð Þý sk al an d D an m ör k Fr ak kl an d Sv is s Kr óa tía Té kk la nd Au st ur rík i N or eg ur Le tt la nd Lú xe m bo rg Ei st la nd Sl óv en ía samanber markmið um 55 prósenta minni losun, upphæðin reiknuð í dollurum. Áætlaður meðaltalskostnaður í flugi árið 2025 n ETS n Skattur n SAF  lovisa@frettabladid.is DÓmsmál Mál föður ríkislögreglu- stjóra, Guðjóns Valdimarssonar, og annarra einstaklinga vegna gruns um vopnalagabrot er enn opið og verður mögulega sent aftur til lög- reglu til rannsóknar. Málin komu öll upp við rannsókn á meintum skipulögðum hryðju- verkum þeirra Sindra Freys Birgis- sonar og Ísidórs Nathanssonar. Lögreglan gerði húsleit á heimili Guðjóns í tengslum við rannsókn- ina og tók af honum skýrslu en hann hefur áratugum saman stundað vopnasölu og vopnasöfnun. Á heim- ili hans fundust á fjórða tug vopna sem hann gat ekki gert grein fyrir. „Það er enn opið og ekki búið að taka ákvörðun um það,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari um mál föður ríkislögreglustjóra. Hann segir að hluti málanna fari að öllum líkindum aftur til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að þar liggur rannsóknarforræði og ákæruforræði vopnalagabrota. „Þegar þetta kemur hingað var óljóst hvernig eða hvort þetta tengd- ist og svo er þetta rannsakað og þetta er ekki hluti af efnisákærunni sem var að enda gefin út í hryðju- verkamálinu,“ segir Ólafur og að málin verði ekki afgreidd með þeim. Hann segir að samtal við lög- regluna sé hafið. Hann segir nokkra grunaða um brot á vopnalögum. „Þetta eru nokkur tilvik og nokkr- ir einstaklingar þar sem grunur er um vopnalagabrot,“ segir hann og að aðallega séu einstaklingarnir grunaðir um vopnalagabrot en þó einnig önnur brot. Héraðsdómur vísaði á mánudag frá þeim ákærum er snúa að grunuðum hryðjuverk- um þeirra Sindra og Ísidórs. Héraðs- saksóknari hefur frest þar til í dag til að kæra úrskurð héraðsdóms. n Mál Guðjóns mögulega sent aftur til lögreglu Skotvopn sem lögreglan haldlagði og sýndi í september. Fréttablaðið/Valli helgisteinar@frettabladid.is hollanD Alþjóðlegir rannsakend- ur segja að allar vísbendingar bendi til þess að Vladímír Pútín hafi útvegað eldflaugina sem grandaði f lugvél Malaysian Airlines númer MH17 árið 2014. Farþegaf lugvélin var á leið frá Amsterdam til Kúala Lúmpúr með 300 farþega um borð þegar hún var skotin niður af aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu. Saksóknarar í málinu segjast búa yfir sönnunargögnum þess efnis að Pútín hafi útvegað skæruliðunum vopnin en ekkert bendi til þess að Rússar hafi skipað þeim að granda f lugvélinni. Rannsakendur greina frá síma- upptökum á milli rússneskra emb- ættismanna og skæruliða í Donbas- héraðinu þar sem þeim er sagt að ákvörðun um vopnaveitingu liggi fyrir hjá forseta landsins. Þeir segja einnig að beiðni þeirra um háþróuð vopn hafi verið samþykkt af Pútín. Teymið hafði vonast til að geta borið kennsl á mennina sem sáu um að skjóta eldflauginni sjálfri en viðurkenndu að það væri ómögu- legt að svo stöddu. R a nnsók na r tey mið sa ma n- stendur af fólki frá Hollandi, Ástr- alíu, Belgíu, Malasíu og Úkraínu, en það voru þegnar þessara landa sem urðu verst úti þegar f lugvélin var skotin niður. n Líklegt að Pútín hafi útvegað eldflaugina Tjibbe Joustra, formaður hollensku flugslysanefndarinnar, stendur við brak flugvélarinnar sem skotin var niður árið 2014. Fréttablaðið/EPa Segir sérstöðu Íslands kalla á afslátt af losunargjöldum Forsætis- ráðherra er ómyrkur í máli í bréfi til Ursulu von der Leyen. Blikur eru á lofti í rekstri íslenskra millilandaflugfélaga að óbreyttu Fréttablaðið/Eyþór framkvæmdastjórnar ESB í fyrra- sumar. Orðið „hættuástand“ er notað í bréfi Katrínar og rætt um alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag og tengsl Íslands við önnur lönd. Um 14 pró- sent þjóðarframleiðslunnar eru háð flugiðnaði hér á landi. Í skjölum sem Katrín sendir með bréfinu fylgja nokkrar sviðsmyndir, gröf sem renna stoðum undir þá staðhæfingu að breytingarnar bitni harðast á Íslandi. „Nei, það tel ég ekki vera,“ segir Katrín, spurð hvort það sé vand- ræðalegt fyrir hana sem formann flokks sem kennir sig við umhverf- isvernd að falast eftir undanþágu frá aðgerð sem ætlað er að minnka losun og hamla gegn hlýnun lofts- lags. Forsætisráðherra segir að ef hún gæti sagt landsmönnum að taka lest eða strætó þegar við ferðumst til útlanda kynni málið að horfa öðruvísi við. n 6 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 9. FeBRúAR 2023 fiMMtUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.