Fréttablaðið - 09.02.2023, Síða 24

Fréttablaðið - 09.02.2023, Síða 24
Ég veit að þetta hefur tekið mikinn tíma en hvað varðar ferlið sjálft þá hefur það í raun gengið mjög snurðulaust fyrir svona stóra bók með svo flókna sögu. Merkisatburðir | Elsku hjartans eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og sonur, Gunnar Óli Jónsson andaðist 28. janúar 2023. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 10. febrúar klukkan 10.30. Ólöf Guðmundsdóttir Berglind Unnur Gunnarsdóttir Guðmundur Þór Gunnarsson Hera Fjölnisdóttir Alex, Emma, Maya, Viggo, Emil og Kría Unnur Ólafsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristinn Daníel Hafliðason vélstjóri, lést 24. janúar á Sóltúni. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 13. febrúar kl. 13. Innilegar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun og hlýhug. Halldóra Kristín M. Guðmundur R. Þórisson Kristinsdóttir Hafliði Brands Kristinsson Natthanicha Catchama Lárus Lárusson Anna Jóna Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn 1822 Haítí ræðst inn í Dóminíska lýðveldið. 1895 William G. Morgan finnur upp leikinn Mintonette, sem verður síðar kallaður blak. 1942 Japanir gera loftárás á borgina Darwin í Ástralíu. 1959 Togarinn Júlí ferst við Nýfundnaland og með honum þrjátíu manna áhöfn. 1964 Bítlarnir koma í fyrsta skipti fram í The Ed Sullivan Show. 1975 Sojús 17 snýr aftur til jarðar með tvo geimfara sem sett höfðu met í dvöl í geimnum, 29 daga og 13 tíma. 1981 Breski leikarinn Tom Hiddleston fæddur. 1981 Forsætisráðherra Póllands, Józef Pińkowski, segir af sér. Herforinginn Wojciech Jaruzelski tekur við af honum. 1984 Bankarán er framið í útibúi Iðnaðarbankans í Breiðholti í Reykjavík. Maður með lambhús- hettu rænir rúmlega 300 þúsund krónum. Hann hefur aldrei náðst. 1987 Fyrsti þáttur Spaugstofunnar sýndur á RÚV. 1991 Litáar velja sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu. 1996 Frumefnið kópernikín er búið til með samruna kjarna blýs og sinks. 2001 Bandarískur kafbátur sökkvir óvart japönsku fiski- skipi. 2005 Fjörutíu manns særast í sprengjuárás Frelsissam- taka Baska á ráðstefnuhöll í Madríd. Vasarė tók við stöðu forvarðar Árnastofnunar árið 2017. Myndir/Sigurður St. JónSSon Innkaup á efnum urðu erfiðari í covid. Löngu viðgerðarferli á Flateyjar- bók er næstum lokið. Forvörður Árnastofnunar segist finna fyrir miklum heiðri og ábyrgð að annast jafnmikinn menn- ingararf. arnartomas@frettabladid.is Flateyjarbók, einn helsti dýrgripur í handritasafni Árnastofnunar, hefur gengist undir langt viðgerðarferli á undanförnum áratugum. Verkefninu, sem hlotið hefur stuðning frá hollvina- samtökunum Vinir Árnastofnunar og ríkisstjórn Íslands, hefur miðað vel og nú er stutt í að handritið klæðist nýrri kápu. Í tilefni þess að nú fer að sjá fyrir endann á þessu mikla forvörsluverkefni verður blásið til málþings á föstudag þar sem meðlimir úr teyminu og aðrir sérfræðingar munu taka til máls. „Í stuttu máli hófst þetta ferli árið 1994 þegar Sigurgeir Steingrímsson tók eftir skemmdum á bindinu,“ segir Vasarė Rastonis, forvörður Árnastofn- unar, sem annaðist viðgerð á hand- ritinu. „Hann sá f ljótt að þörf væri á aðstoð og leitaði til forvarðarins Chri- stopher Clarkson heitins til að fram- kvæma ástandskönnun á handritinu og fá ráðleggingar um hvað þyrfti að gera.“ Þótt viðgerðarferlið hafi tæknilega séð staðið yfir síðan þá útskýrir Vasaré að ekki hafi verið unnið að því statt og stöðugt síðan. Aðrar ástandskannanir voru gerðar á handritinu árið 2007 og svo aftur 2013. Vasaré tók við stöðu forvarðar Árna- stofnunar 2017 og hóf stuttu síðar að vinna að viðgerðarferlinu. Hún á erfitt með að koma í orð þeim tilfinningum sem fylgja því að vinna með menning- ararf á borð við Flateyjarbók. „Þetta er bæði mikill heiður og um leið mikil ábyrgð,“ segir hún. Viðgerðarferlinu er nú næstum lokið en Vasaré segir að beðið sé eftir leðri til þess að hjúpa bókina sinni nýju kápu sem eru leðurklædd tréspjöld. Aðspurð um hverjar helstu áskoranirnar hafa verið á þessum tíma segir hún að vinn- an hafi í raun gengið frábærlega. „Ég veit að þetta hefur tekið mikinn tíma en hvað varðar ferlið sjálft þá hefur það í raun gengið mjög snurðu- laust fyrir svona stóra bók með svo f lókna sögu,“ segir hún en bendir þó á að það sé ekki auðvelt að velja réttan efnivið í samræmi við sérstöðu hand- ritsins. „Með fullri virðingu fyrir Bau- haus þá vildum við ekki fara þangað til að kaupa viðarplanka, við vorum að leita að sérstöku efni. Vegna Covid gat verið erfitt að geta ekki farið til annarra landa til að kaupa efni en á endanum tókst þetta allt saman frábærlega.“ Málþingið hefst klukkan 13.00 í Veröld - húsi Vigdísar á morgun þar sem Vasarė mun fjalla ítarlegar um viðgerðarferlið. Þá verða einnig f lutt erindi um sögu handritsins, efnahags- legar forsendur fyrir gerð þess á sínum tíma og það efni sem til þurfti, bókfell, blek, litarefni og annað. n Flateyjarbók í sínu fínasta pússi Merkilegt handrit Flateyjarbók er stærst íslenskra skinnbóka, alls 225 síður, og var að stærstum hluta skrifuð á árunum 1387 og 1394. Bókin er nefnd eftir Flatey á Breiðafirði þar sem Brynj- ólfur Sveinsson biskup fékk hana frá Jóni Finnssyni árið 1647. Flateyjar- bók inniheldur mikinn fjölda sagna, flestar um norska konunga, á vel skrifuðum síðum með skreyttum upphafsstöfum. Danakonungur fékk bókina að gjöf árið 1656 og varð það Íslendingum mikið kappsmál í seinni tíð að fá Flateyjarbók ásamt öðrum hand- ritum heim til Íslands. Flateyjarbók og Konungsbók var að lokum skilað til Íslands við hátíðlega athöfn 21. apríl 1971. Þá afhenti Helge Larsen, menntamálaráðherra Dana, hana Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráð- herra með orðunum: „Vær så god! Flatøbogen“. 16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 9. FeBRúAR 2023 FImmtUDaGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.