Fréttablaðið - 09.02.2023, Síða 28

Fréttablaðið - 09.02.2023, Síða 28
Tæplega hálfri öld eftir að gamanþættirnir Fawlty Towers slógu í gegn endur- vekur John Cleese tauga- veiklaða fúlmennið Basil Fawlty. Tvær grímur renna þó á gamalgróna aðdáendur Cleese sem óttast helst að hann nái aldrei sömu hæðum aftur og að í breyttum heimi muni Basil trylla marga. Og þá alls ekki úr hlátri. toti@frettabladid.is Hann var kvíðablandinn sælu- hrollurinn sem fór um margan einlægan aðdáanda hinna sígildu og sífyndnu bresku sjónvarpsþátta Fawlty Towers þegar annar helsti hugmyndafræðingurinn að baki þeim, Monty Python-goðsögnin John Cleese tilkynnti að hann ætli að gera nýja þætti um ófarir Basils Fawlty. Áhyggjuefnin eru þau helst að Cleese muni ekki komast með tærnar þar sem hann var með hæl- ana þegar hann var upp á sitt besta upp úr 1970 og að hvorki hann né Basil muni finna mikinn hljóm- grunn í breyttum heimi þar sem lítið þarf til að viðkvæm snjókorn þyrlist upp með látum á samfélags- miðlum. Cleese, sem er 83 ára, ætlar að endurtaka rullu sína sem Basil og skrifa nýju þættina ásamt dóttur sinni, grínistanum Camilla Cleese. Hugmynd þeirra feðgina er að fylgjast nú með Basil, sem er enn kaldhæðinn, gramur og haturs- fullur, reyna að sigla milli skers og báru í samtímanum og freista örlaganna með því að spreyta sig á hótelrekstri á ný. Nú með dóttur sína sem hann hefur nýlega upp- götvað að hann eigi. Upprisa grínsins „Rétttrúnaðarfólkið gekk milli bols og höfuðs á gamanseminni en nú ætlar stórmeistari og helsti mál- svari gríns og gleði að reisa hana upp frá dauðum. Ekki veit ég hvort það er vinnandi vegur en ef einhver getur það, þá er það einmitt John Cleese og megi honum vel farnast,“ segir Baldur Hermannsson, eðlis- fræðingur á eftirlaunum. Aðeins örfáar vikur eru síðan Baldur hallaði sér síðast að Cleese þegar hann dæmdi áramótaskaup- ið dautt og ómerkt á Facebook með þessum orðum: „Við hefðum aldrei getað samið Fawlty Towers. Við erum ófyndin þjóð, illskeyttar truntur sem gleðj- ast yfir níði og einelti og okkur líður vel í litlu hjörtunum okkar þegar einhver annar er smánaður og hæddur.“ Hörð barátta Baldur heggur í sama knérunn við boðaða upprisu Basils Fawlty og segir veröldina satt best að segja hálfleiðinlega þessa stundina. „Þar sem móðgunargirni og píslarvættis- árátta ráða ríkjum og einelti og per- sónuníð hafa leyst gamansemina af hólmi.“ Hér kveður í raun við svipaðan tón og Cleese hefur slegið í við- tölum, á Twitter og víðar á undan- förnum árum þar sem hann hefur pakkað í vörn fyrir tjáningarfrelsið og réttinn til að móðga og grínast með allt. Full geðvonskulega á köflum jafnvel. „En tímarnir eru breyttir og ég spái því að þetta verði hörð barátta,“ heldur Baldur áfram. „Fýlupokarnir munu ekki afsala sér völdum mót- þróalaust en skemmtilega fólkið leggur allt í sölurnar. Ég spái því að heimurinn skipi sér í hólf þannig að fýlan ræður á vissum afmörkuðum sviðum en ómenguð gamansemin fái að blómstra annars staðar. Og svo ræður hver og einn hvar honum finnst best að vera.“ Hótel Tindastóll Fyrsti Fawlty Towers þátturinn var frumsýndur á BBC 19. september 1975 og þættirnir því á 48. aldurs- ári. Þeir eru enn í endursýningum á BBC2 og í streymi á veitunni Brit- Box. Hingað bárust þættirnir fyrst 1977 og hétu Hótel Tindastóll þegar Ríkissjónvarpið tók þá til sýninga. Þættirnir gerðust á litlu hóteli í Torqay á Englandi þar sem Basil, mannhatandi og krepptur eigand- inn og hótelstjórinn, reyndi að halda rekstrinum gangandi í stöð- ugum átökum við konuna sína hana Sybil. Cleese og þáverandi eiginkona hans, Connie Booth, skrifuðu hand- ritið saman og léku annars vegar Basil og hins vegar ráðagóðu her- bergisþernuna Polly. Polly var eina sæmilega eðlilega manneskjan á hótelinu og stóð í ströngu við að vernda Basil fyrir sjálfum sér. Þá var það ekki til að einfalda til- veru Basils að þjónninn og helsta hjálparhella hans, Spánverjinn Manuel, kunni litla ensku og tókst að misskilja flest og klúðra hinu. lovisaa@frettabladid.is Sjónvarpssálfræðingurinn forn- frægi, Dr. Phil, tilkynnti í síðustu viku að þátturinn sívinsæli sem við hann er kenndur sé nú að renna sitt skeið. Dr. Phil er vel þekktur hér á Íslandi en þátturinn hefur verið sýndur í íslensku sjónvarpi svo gott sem frá upphafi. Undanfarin ár hefur Dr. Phil verið sýndur í Sjónvarpi Símans, daglega klukkan 12 og svo aftur rétt fyrir kvöldmatarleytið. Samkvæmt yfir- lýsingu frá Dr. Phil sjálfum, eða Phil McGraw, mun síðasti þátturinn fara í loftið ytra í sumar en íslenskir aðdáendur hans fá gálgafrest fram á haust því hér erum við nokkuð á eftir Bandaríkjunum. „Ekki liggur fyrir hvort við tökum þátt til sýninga sem svipar til Dr. Phil en erfitt verður að fylla það skarð sem Dr. Phil skilur eftir sig enda á hann fjölmarga aðdáendur hér á landi sem við fáum strax að heyra frá ef við erum einhverra hluta vegna sein að sýna nýja þætti,“ segir Guðmundur Jóhannsson sam- skiptastjóri Símans. „Ég finn hjá mér þörf til að ná til breiðari hóps áhorfenda því ég hef miklar og alvarlega áhyggjur af amerísku þjóðinni,“ sagði Phil MacGraw í yfirlýsingu sinni þar sem hann lét þess jafnframt getið að þótt að hann sé að hætta fram- leiðslu þáttanna sé hann ekki að hætta í sjónvarpi og muni taka upp þráðinn í nýjum þætti. Guðmundur útilokar ekki að nýr þáttur Dr. Phil verði tekinn til sýninga á Sjónvarpi Símans. „Dr. Phil sjálfur segist vera að hverfa frá skjánum til að skapa nýja þætti á betri tíma í bandarísku sjónvarpi á næsta ári og því aldrei að vita nema að hann snúi aftur í Sjónvarp Símans.“ Þrátt fyrir bandarísku doktors- nafnbótina er Phil ekki læknir en státar þó af doktorsgráðu í klínískri sálfræði. Hann hefur hins vegar ekki endurnýjað lækningaleyfi sitt frá 2006 og í raun aldrei haft slíkt leyfi í Kaliforníu þaðan sem hann sendir þátt sinn út. Dr. Phil hóf sjónvarpsferil sinn sem gestur og álitsgjafi í þætti Opruh Winfrey árið 1998 þar sem hann mætti til leiks sem sérfræð- ingur í umræður um foreldrafærni og hjónabandið. n Fýlupokarnir munu ekki afsala sér völdum mótþróalaust en skemmtilega fólkið leggur allt í sölurnar. Baldur Hermannsson Rétttrúnaðarliðið, sem skilur hvorki háð né frumleika, mun leita að einhverju til að froðufella yfir. Kolbrún Bergþórsdóttir Vandi verður að fylla skarð Dr. Phil Guðmundur Jóhannsson, samskiptastjóri Símans Hjónin Robin og Phil McGraw, eða Dr. Phil. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Áhyggjur af Basil í breyttum heimi Feðginin Camilla og John Cleese ætla að skrifa saman handrit að nýjum framhaldsþáttum grínsnilldarinnar Hótels Tindastóls en eitthvað er um áhyggjur af því að hin forna frægð Basils Fawlty og Cleese fleyti þeim skammt í veröld sem er víðs fjarri þeirri sem var 1975. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Saman mynduðu þau Prunela Scales (Sybil), John Cleese (Basil), Andrew Sachs (Manuel) og Connie Booth (Polly) einhvern samstilltasta og besta grínkvartett sem sögur fara af í bresku sjónvarpi og þótt víðar væri leitað. MYnd/BBC Cleese gat allt RÚV endursýndi Hótel Tindastól 2016 og Kolbrún Bergþórsdóttir, þá ritstjóri DV, fagnaði ákaflega í blaðinu undir fyrirsögninni „Cleese getur allt“ og skrifaði meðal annars: „Þarna er frumleiki í fyrirrúmi ásamt dágóðum skammti af ósvífni í bland við algjörlega ótaminn galsa. Þarna er engin pólitísk rétthugsun, allt getur gerst og margt sagt sem í raunveruleikanum þætti beinlínis ósmekklegt. Þarna er allt leyfilegt og það er einmitt það sem er svo skemmtilegt.“ Kolbrún segist nú vona það besta en býr sig undir það versta þegar Cleese stefnir á framhaldsþætti um Basil sem stendur uppi í breyttum heimi án Pollyar, Sybil og Manuels. „Mér finnst John Cleese vera hug- aður maður. Gömlu þættirnir voru sjónvarpssnilld og þessir nýju munu ætíð verða bornir saman við þá. Þá er ekki nóg að þeir séu góðir, þeir verða að vera brilljant,“ segir Kol- brún. „Ef ekki þá verður litið svo á að Cleese hafi mistekist. Ég vona svo innilega að honum takist vel upp, en hef nokkrar efasemdir um þessa ákvörðun hans.“ Kolbrún deilir áhyggjum Baldurs af því að áhorfendur séu mun síður til þess fallnir að tengja við Basil en þeir voru undir lok áttunda ára- tugarins. „Svo vitum við náttúrlega hvað mun gerast. Rétttrúnaðarliðið, sem skilur hvorki háð né frumleika, mun leita að einhverju til að froðufella yfir. Þegar kemur að pólitískum rétttrúnaði eiga við orðin „leitið og þér munið finna“. Þetta húmors- lausa lið mun steypa sér yfir Cleese eins og hungraðir úlfar. Já, Cleese er sannarlega hugrakkur!“ n 20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 9. FeBRúAR 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.