Vesturland

Árgangur

Vesturland - 01.12.1993, Blaðsíða 13

Vesturland - 01.12.1993, Blaðsíða 13
VE STURLAND Blað vestfirskra sjálfstœðismanna 13 Guðjón A. Kristjánsson: V estfj ar ða vandinn Þessi orð eru hávær í umræðunni þessa dagana. Menn segja í undrun, sumir hverj- ir, af hverju er svo slæmt ástand á Vestfjörðum? Svarið er auðvitað ekki auðvelt og varla tæmandi með því að benda á eitt atriði sem öllu veldur. Það verður þó varla dregið í efa að megin orsök eru skertar aflaheimildir samfara þeirri útfærslu fiskveiði- stjórnunar kvótakerfis sem verið hefur við líði síðastliðin ár. Einkum er það framkvæmd kerf- isins eftir 1985 sem höggvið hefur í afkomu Vestfjarða í heild. Þessa umræðu þekkja Vestfirð- ingar. Okkar hlutdeild í grálúðuaflanum var minnkuð og grálúðuheimildum jafnvel dreift á skip sem aldrei höfðu veitt grálúðu og eru ennþá að selja þær aflaheimildir á hverju ári. Ein ástæða vandans Síðastliðin fimm ár hefur þorskaflinn endalaust verið skorinn niður. Vestfirðir hafa alla tíð verið mikið þorskveiðisvæði og megnið af afla- heimildum vestfirskra fiskiskipa hafa verið í þorski. Þegar svo er komið að fiskiskip, sem hafði t.d. 100 tonn af þorski fyrir árið 1988 - 89, er komið niður í 27 tonna þorskveiðiheimild, er grund- völlur útgerðar og einnig fiskvinnslu gjörsamlega brotinn. A undanförnum árum hávaxta- stefnu hefur ekki verið unnt að greiða niður skuldir, í besta falli hefur verið haldið í horfinu. Fiskifræðin Þegar það fór að heyrast í umræð- unni á síðastliðnum vetri að nú yrði að ráðum fiskifræðinga að skera heidarafla þorsks niður í 150 þúsund tonn, hélt ég því fram, að í fyrsta lagi værum við þegar komnir ofan í lægðina í þorskveiðum og aflabrögð yrðu betri á næsta ári. I því efni dró ég þá ályktun af fyrri niðursveiflum í þorskafla í sögulegu samhengi séð um minnkandi þorsk 3 - 4 ár í röð uns botninum væri náð. Einnig vegna þess að fjöldi skyndi- lokana vegna uppvaxandi þorsk hafði snarvaxið á þessu ári sem er vísbending um að talsvert sé af upp- vaxandi fiski. I öðru lagi fullyrti ég að vanda- málin sem samfara yrðu svo miklum niðurskurði í þorskafla væru svo gíf- urleg fyrir sjávarútvegsbyggðir, sem afkoma okkar allra í þessu landi byggist á, að vonlaust væri að at- vinnufyrirtæki í fiskvinnslu og út- gerð gætu þolað slíkan niðurskurð ofan í allt sem á undan er gengið í þeim efnum. Borgandi af lánum sem væru fyrirtækjunum ofviða áður en núverandi niðurskurður á afla bætist við. Ég get varla ekki haldið því fram í þessum skrifum að orð mín og skrif hafi orðið til þess að okkar ráðamenn í ríkisstjórn hafi veturinn 1993 áttað sig á hvert og hversu alvarlegt vandamálið yrði þegar haustið 1993. Þó að ég hafi lítið gaman af því að vera með svartsýnisspár, þá verð ég að segja að telji menn nú að vandinn sé stór. Þá er það varla annað en sterk viðvörun þess sem verður á næsta ári ef aflaheimildir verða óbreyttar. Pólitísk ákvörðun Ég tel rétt að minna á það að ég hélt því fram haustið 1983 að það ár værum við komnir í botn í náttúrlegri niðursveiflu í þorskveiðum og afli myndi vaxa i þorski árin þar á eftir alveg í mótsögn við álit fiskifræð- inga þá haustið 1983. Þessar fullyrðingar mínar reynd- ust réttar. Þá eins og nú var talið að ég væri með ábyrgðarlaust tal. Vonandi okkar allra vegna væri að ráðamenn þyrðu að taka nú þá póli- tísku ákvörðun að auka þorskveiðar, eða sjá menn engin jákvæð merki til þess að það megi gera. Aukning milli ára Þegar verið var að ákveða þorskafla þessa fiskveiðiárs var því haldið mjög á lofti að gífurlegur samdráttur væri á þorskafla togar- anna og það notað til sannindamerkis um að nú væri hætta á ferðum, þó öllum sem stunduðu vertíðarveiðar nær landi fyndust aflabrögð góð. Nú hefur það gerst að þorskafli togara hefur aukist um 38% frá því í sömu mánuðum í fyrra. Það gerist þrátt fyrir að búið sé að loka stórum og gjöfulum fiskimiðum fyrir tog- veiðum og bátar hafa einnig aukið sinn þorskafla. Ég hef margoft á undanförnum árum varað við því að núverandi kvótakerfi með frjálsri sölu afla- heimilda gæti valdið skyndilegri byggðaröskun. I erindi um stefnumótun í at- vinnumálum landsbyggðarinnar sem haldið var í Borgarnesi 8. október 1990 sagði ég meðal annars: Byggðaröskun getur borið að með misjöfnum hætti, þ.e. að aðdragand- inn getur verið skyndilegur eða hægfara. Skyndileg byggðaröskun hlýtur að vera erfiðari viðureignar, þar sem fátt verður til vamaðar í aðlögun við breyttar aðstæður. Guðjón Arnar Kristjánsson. Einkum er það fram- kvæmd kerfisins eftir 1985 sem höggvið hefur í af- komu Vestfjarða í heild. Þessa umræðu þekkja Vestfirðingar. Okkar hlutdeild í grá- lúðuaflanum var minnkuð og grálúðuheimildum jafn- vel dreift á skip sem aldrei höfðu veitt grálúðu og eru ennþá að selja þær afla- heimildir á hverju ári. Nærtæk dæmi um orsakir skyndi- legrar byggðaröskunar er sala á afla- heimildum, sem öll íslensk sjávarþorp standa og falla með. Lög um stjórnun fiskveiða með frjálsri sölu á óveidd- um fiski er tímasprengja sem enginn veit hvar né hvenær springur, með al- gjörlega óvissa framtíð og enga mót- aða atvinnustefnu fyrir landsbyggð- ina. Þessi tímasprengja safnar í sig hverri hleðslunni á fætur annarri. Enn eru þó margir sem ekki ná tengslum við tíðarandann og reyna að láta sem allt sé hér á landi í eðlilegri þróun. Varnarorð A síðastliðnu vori skrifaði ég greinargerð í Vesturland þar sem ég varaði okkar flokk, Sjálfstæðis- tlokkinn, við sívaxandi óánægju meðal almenns sjávarútvegsfólks. Það sem ég beindi til forystumanna Sjálfstæðisflokksins var m.a. þetta: Það er vissulega svo að ekki eru menn á eitt sáttir í Sjált'stæðisflokknum um hvernig beri að vinna úr þeim mismunandi sjónarmiðum, sem Ósíqim starfsfóííq. oífar^ viðskiptavinum og Vestfirðingum ötfum gCzðiCegrajóCa ogfarsœCs Cgmancíi árs Vélsmiðja ísafjarðar •x* F4FNIRHF ÞINGEYRI SlMAR 8200 - 8201 WJt KAUPFÉLAG DÝRFIRÐINGA __ PINGEYRI SÍMAR 8200 - 8201 SLATURFELAGIÐ BARÐIÍ Togaraútgerð Isafjarðar ¥ Bíldudal & 0 HEKLA PATREKSHREPPUR Vélvirkinn sf Bolungarvík ESSO Olíufélagið hf. ÁRATUGA REYNSLAIFRAMLEIÐSLU TOGBÚNAÐAR J. HINRIKSSON HF. fram hafa komið í umræðum innan hans, um stefnuna í sjávarútvegs- málum. Fyrir mér er það hins vegar dag- ljóst að margir sjálfstæðismenn, sem mikils mega sín í áhrifum innan flokksins, vilja festa kvótakerfið í sessi. Ég er reyndar jafn viss um að verði sú reyndin að lítt eða ekki verði hlustað á þá fjölmörgu, sem kosið hafa Sjálfstæðisflokkinn á undan- förnum árum og ekki eiga beinna erfðafestufjármuna að gæta í óveidd- um fiski í sjó innan kvótakerfis, þá sé veruleg hætta á því að hinn almenni kjósandi Sjálfstæðisflokksins úr röð- um fiskvinnslufólks og sjómanna, telji að þar ráði öllu sjónarmið sæ- greifanna, önnur sjónarmið fái væg- ast sagt litla umfjöllun eða sann- gjarna málsmeðferð. Ég vara því við að vanmeta sann- færingu og réttlætistilfinningu fólks í sjávarbyggðum landsins, þegar at- vinnuréttur þess er að veði í kvóta, sem bundinn er á fiskiskipum með úreldingarrétti. Kvótabraskið Undanfarin 10 ár hef ég verið í forsvari fyrir Farmanna- og fiski- mannasamband Islands. Þessi samtök eru meðal annars í forsvari fyrir skipstjórnarmenn á fiskiskipum. Við höfum stundum á undanförn- um árum verið einu samtökin í sjáv- arútvegi sem mótmælt hafa núver- andi fiskveiðistjómunarkerfi. Önnur samtök sjómanna hafa nú tekið undir okkar sjónarmið af fullum þunga og hafnað alfarið því braski sem orðið er í kvótakerfinu með ó- veiddan fisk í sjó. Við hjá FFSI höfum ásakað út- gerðarforystuna í þessu landi fyrir þá lögleysu að láta sjómenn taka þátt í að greiða öðram kvótaréttarhöfum fyrir aflaheimildir. Lengi vel trúðu sjómenn á Vest- fjörðum þvf ekki að þeir yrðu þátt- takendur í slíkum viðskiptum, annað er að koma á daginn vítt og breitt um Vestfirði. Byggðimar sem lent hafa í hremmingum með sitt atvinnulíf era nú komnar í leiguliðahlutverkið og arðurinn sem ætti að vera eftir í byggðinni af veiðum og vinnslu rennur til kvótarétthafans suður í flóa eða norður í land. LÍÚ og kvótakerfíð Ég get ekki látið hjá líða að veita forystu LÍU eftirfarandi ádrepu í þessu sambandi. Það er í mínum huga alveg klárt að færist kvótinn á fáar hendur eða að eignarhald hans festist í sessi frekar en orðið er, þá eru íslenskir útgerðarmenn, sem í orði kveðnu era að mótmæla auðlindaskatti, að vinna að skattlagningu á óveiddan fisk í sjó. Fyrir þvf kerfi era útgerð- armenn að berjast með framhaldi núverandi laga um stjórn fiskveiða við ísland. Farmanna- og fiski- mannasambandi Islands hefur um nokkra tíð verið legið á hálsi fyrir að fylgja ekki eftir þeim meginstraumi hagsmunasamtaka í sjávarútvegi í stuðningi sínum við kvótakerfið. Þetta hlutskipti samtakanna hefur ekki aflað þeim mikilla vinsælda hjá þeim, sem fara með yfirstjóm sjáv- arútvegsmála hér á landi. Vonarglæta Á hinn bóginn staðhæfi ég að af- staða FFSI til stjórnar fiskveiða sé grundvölluð á heilbrigðri skynsemi skipstjórnarmanna, sem hafa séð tímana tvenna á þessum vettvangi. Það er nú heldur betur að koma í ljós að augu manna eru að opnast fyrir þeim málflutningi sem haldið hefur verið fram af mér og öðrum forystumönnum skipstjórnarmanna að undanförnu. Um það vitnar best leiðari Morgunblaðsins þann 28. nóvember s.l. um vanda Vestfjarða svo og Reykjavíkurbréf í sama blaði þann dag. Vissulega vona ég að úr rætist, en mikið óskaplega finnst mér þurfa mikið til, svo örlítil skilningsglæta vakni hjá talsmönn- um ríkisstjórnar í sjávarútvegsmál- Gleðileg jól! Megi heillastjama lýsa landi og þjóð á nýju ári. ISLANDSBANKI

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.