Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 14
14
VESTURLAND Blað vestfirskra sjálfstœðismanna
/
„Island frjálst og
fullvalda ríki „
- Bók Matthíasar Bjarnasonar komin út í tilefni af því að 75 ár
eru liðin frá því að Island varð frjálst og fullvalda ríki, þann 1.
desember 1918
„Ástæða þess að ég ákvað að ráðast
í útgáfu þessarar bókar er fyrst og
fremst sú, að á síðustu áratugum hefur
dofnað yfir minningunni um 1.
desember“, sagði Matthías Bjamason
alþingismaður í samtali við Vestur-
land, í tilefni af því að þann 1.
desember sfðast liðinn kom út ný bók,
nefnist ísland frjálst og fullvalda ríki
og hann hefur unnið að. Það er óhætt
að segja að Matthías er stórtækur f
bókaútgáfunni á þessu ári. Því þennan
sama dag kom einnig út sjálfsævisaga
hans, Járnkarlinn
„Það hefur oft komið upp í huga
minn“, sagði Matthías ennfremur „að
gera tilraun til þess að vekja fólk til
umhugsunar um þennan mikilvæga
dag í þjóðarsögu okkar. Ekki síst
yngra fólkið en einnig margt hið
eldra. Um leið að minnast þeirra sona
og dætra Islands sem í meira öld þar
á undan háðu baráttu fyrir sjálfstæði
íslenskrar þjóðar. Þann I. desember
1918 náðist loks sá árangur að Island
varð frjálst og fullvalda ríki. Sfðan má
segja að 17. júní 1944 hafi náðst
lokatakmark þess mikla sigurs sem
vannst 1. desember 1918.
Efni þessarar bókar er fjölbreytt.
Eg rita formála að bókinni. Þá er
minnst Kristjáns konungs hins 10,
með mynd og æviágripi. Síðan eru
birt orðrétt lög um að Island og Dan-
mörk séu frjáls og fulivalda ríki í
sambandi við konung. Þessi lög eru
undirrituð af Kristjáni konungi 10 og
Jóni Magnússyni þá verandi for-
sætisráðherra Islands. Islensk - danski
1. desember 1993 eru 75 ár liðin frá gildistöku
dausk-ísleiisku sambanrlslaganna
Afþessari bók eni géftri ól og ántuð 250 töluseU'eintök.
Eíntakþetta er núrner:
Safnað lliiur og búið lil preníunar
Matrliías Bjiu-naaon
JSLAND
FRJALST
FUELVALDA
RIKI
Titilsíða bókarinnar undirrituð af höfundi
samningurinn er birtur með eigin-
handarundirskrift allra samninga-
manna og síðan staðfesting ríkis-
stjórnar Islands sem þá var skipuð
þremur ráðherrum. Jóhannes Hall-
dórsson cand mag. fyrrverandi starf-
smaður Alþingis skrifar um þinglega
meðferð málsins, en það var rætt á
Alþingi á tveimur þingum. Skýrt er
ítarlega frá gangi málsins. Allir sam-
ningamennirnir sem tóku þátt í gerð
þessa samninga eru kynntir, með
æviágripi og myndum. Fánamálið er
gert að umræðuefni og sömuleiðis
þjóðaratkvæðagreiðslan. Myndir
fylgja af samninganefndinni, frá AI-
þingi frá þessum tíma. Þá er birt
mynd af fálkamerkinu sem á þeim
tíma var þjóðfáni íslands, en okkar
fáni varð að veruleika árið 1920.
Handskrifaðar fundargerðir íslensku
sendinefndarinnar eru birtar og
sömuleiðis dansk - íslensku samn-
inganefndarinnar. Þær voru skrifaðar
upphatlega á dönsku, en einnig fylgir
með íslensk þýðing á þeim.“
Hin nýja bók Matthfasar
Bjarnasonar er afar þýðingarmikil
heimild um einn þann atburð sem
hæst rís í sögu fslenskrar þjóðar. Hún
verður vonandi til þess að vekja fs-
lendinga enn betur til vitundar um
íslenskan þjóðararf og það mikil-
verða hlutverk sem þessi atburður
gegnir.
Bókin er prentuð hjá Prent-
smiðju G. Ben. Hönnuður bókarinnar
er Birgir Andrésson. Skjaldborg
annast dreifingu hennar. Bókin er
bundin í fallegt band og verða gefin
út 250 eintök, tölusett og árituð af
höfundi.
Matthías með bækurnar sínar tvær sem gefnar eru út fyrir þessi jól.
-SG
‘Bestujóía- og nýárskveðjur
tif viðsfiptavina okjjar, starjsfófks
og annarra ‘Vestfirðinga, meðþafffceti
fyrir árið sem er að kyeðja.
Osfum viðsÍQptamnum svo og ‘Vestfirðingum öffum
gfeðifegrajófa ogfarscefs komancfi árs, með þöfffyrir
viðskiptin á árinu sem er að fíða.
Sencfum sjáffstceðisfóffj svo og ‘Vestfirðingum öffum
ftestujófa- og nýársfyeðjur
é
r
ir
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
á ísafirði
Sencfum sjáffstceðisfóffi svo og ‘Vestfirðingum öffum
ftestujófa- og nýársfveðjur
4, Æ Kjördæmisráð
Sjálfstæðisflokksins
M í Vestfjarðakjördæmi
Nýjar
vestfirskar
jólabækur:
VESTFIRÐIR
Héraðslýsing í myndum og orðum
eftir Hjáimar R. Bárðarson.
JÁRNKARUNN
Bók sem beðið hefur verið eftir.
Endurminningar Matthíasar Bjarnasonar.
STRANDHÖGG
Nýstárleg skáldsaga um strandhögg íýmsum
heimshornum, eftir Rúnar helga Vignisson.
HAFBORG
Skáldsaga um ísfirska togarasjómenn,
eftir Njörð P. Njarðvík.
VIÐ URÐARBRUNN
Skáldsaga úr heimi fyrstu kynslóðar íslendinga,
eftir Vilborgu Davíðsdóttur.
ÁHÁSKASLÓÐ
Unglingasaga um sjóferð og siglingar,
eftir Eyvind Eiríksson.
BERNSKUMINNINGAR
Ljóðabók eftir Torfa Hjörleifsson.
Bókaverslun
Jónasar Tómassonar
ísafirði
Sími 3123