Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 20
Yfir 300 myndir og tæplega
1000 nöf n í naf naskrá
Kr. 3495-
Óbreytt
verö á jólabókunum
Bókaútgefendur
.••eii lenti ö eiturlyfjaiieyslu
ISkialdborg
Armúla 23 Sími 91-67 24 00
TeftpÍHingulausar
eeviniinningar litriks
stjórnniálanianns
„Fjandanum ráðríkari en ekki hægt annað en að fyrirgefa honum.Vildi alltaf hjálpa
lítilmagnanum.”
Ólafur Ólafsson, landlæknir.
„Hann starfar af lífi og sál fyrir fólkið í kjördæmi sínu og þegar hann sér halla undan
fæti fyrir sjávarútveginum í byggðum Vestfjarða tekur það hann mjög sárt.”
Einar Oddur Kristjánsson, Flateyri.
„Það er einn staður þar sem maður hefur Matthías aldrei, og það er í vasanum.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Matthías Bjarnason alþingismaður og
fyrrverandi ráðherra ræbir viá Ornólf Arnason
um ævi sína og viðhorf.
Matthías er mikilvirkasti málsvari fólksins í hinum dreifðu byggðum
landsins, til sjávar og sveita. Hann hefur verið í eldlínu íslenskra
stjórnmála í fimmtíu ár og það hefur blásið um hann allan tímann.
Hann lætur skoðanir sínar ekki síður í'ljós innan
Sjálfstæðisflokksins en utan og er einn höfuðandstæðingur
frjálshyggjunnar. Matthías Bjarnason hefur gegnt ráðherrastöðu og
var m.a. sjávarútvegsráðherra í þorskastríðinu. Hann er frægur fyrir
gamansemi og hispursleysi og segir frá uppvexti sínum á ísafirði
og stjórnmálastappi á heimaslóðum í samtölum við Örnólf Árnason,
höfund bókarinnar ,,Á slóð kolkrabbans."
Hvað segja samferðamenn um Matthías?
Hún ætlaði
Hér er sagt frá ótrúlegri lífsreynslu ungrar, íslenskrar konu, Matthildar Jónsdóttur Campbell.
Tuttugu og eins árs fór hún af landi brott og ætlaði að höndla hamingjuna með manninum sem
hún elskaði, en örlögin urðu önnur. Hún leiddist út í eiturlyfjaneyslu og vændi. Hún hefur
gengið í gegnum vítisloga í mörg ár og meðal annars vaknað í líkhúsi þar sem hún hafði verið
úrskurðuð látin. Hún var tilbúin að gera allt fyrir heróínið. Af óútskýranlegum ástæðum tók hún
sjálf þá ákvörðun einn daginn að reyna að hætta. Henni tókst smátt og smátt að vinna sig út
úr brjálæðinu. Nú starfar Matthildur í undirheimum Chicagoborgar og aðstoðar þá sem eru
djúpt sokknir í eiturlyfjum.
Coral Polge hefur óvenjulega náðargáfu. Þar sem flestir hefðbundnir skyggnilýsingamiðlar lýsa
gestum sínum að handan stígur hún í raun einu skrefi framar og teiknar á pappír eftirmyndir
af þeim sem hún er í þannig sambandi við, ættingjum hinna brottfluttu til mikillar undrunar.
Coral Polge er mörgum íslendingum að góðu kunn og eiga þeir margir slíkar miðilsmyndir eftir
hana í fórum sínum en Coral hefur heimsótt ísland nokkrum sinnum við góðan orðstír. Fyrir þá,
og alla aðra, sem áhuga hafa á að kynnast ferli einstaks miðils og sérstakri og áhrifamikilli
aðferð hans til sönnunar á lífi eftir dauðann, er mikill fengur að þessari bók.
&é irjöBidte hamingjuna...