Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Side 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tón
listar skólanna voru haldnir í Lang
holtskirkju sl. laugardag.
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna
er samstarfsverkefni fjögurra tón listar
skóla á höfuðborgarsvæðinu, Tón
listarskóla Garðabæjar, Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs
og Tónskóla Sigursveins.
Markmiðið með starfi Sinfóníu
hljóm sveitar tónlistarskólanna er að
veita þeim sem komnir eru áleiðis í
tónlistarnámi þjálfun í að leika í full
skipaðri hljómsveit.
Árlega æfir hljómsveitin allar helgar
í janúar og lýkur æfingaferlinu með
tónleikum.
Í ár tóku 98 börn og ungmenni þátt í
hljómsveitarstarfinu þar af 15 nemendur
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
DAGUR
TÓNLISTARSKÓLANNA
Dagur tónlistarskólanna verður
þriðjudaginn 7. febrúar. Skólinn hefur
reynt að halda þennan dag í heiðri og
oft með opnu húsi með hljóðfæra
kynningum og tónleikum. Að þessu
sinni eru fyrirhugaðir tónleikar kl. 18
þar sem nemendur úr öllum deildum
skólans koma fram en opið hús verður
í marsmánuði.
Fimmtán hafnfirskir nemendur í
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna
Tónleikar á degi tónlistarskólanna 7. febrúar
Lj
ós
m
.:
M
O
TI
V
Bæjarbúar hafa nú fengið álagningar
seðla sína um fasteignaskatt. Þrátt fyrir
gríðarlega hækkun á fasteignamati íbúa
í Hafnarfirði, eða að jafnaði um 22%,
sá bæjarstjórn enga ástæðu til að lækka
innheimtuhlutfall sitt og hefur því á
þessu ári um 22% hærri tekjur af
fasteignaskatti en á síðasta ári auk þess
sem tekjur hækka vegna fjölgunar
íbúða.
REYNT AÐ SLÁ RYKI Í
AUGU BÆJARBÚA
Í tilkynningu á vef bæjarins segir:
„Álagningarprósentur fráveitugjalds og
vatnsgjalds lækka til þess að koma til
móts við 22% meðalhækkun fasteigna
mats milli ára. Miðað er við að fast
eignagjöld íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði
hækki að meðaltali í takti við verðlag
en ljóst er að fasteignamat í bænum, og
þar með fasteignagjöld, hefur hækkað
mismunandi mikið eftir íbúðargerð og
staðsetningu. Sorphirðugjald hækkar
svo frá fyrra ári vegna innleiðingar á
nýju sorphirðukerfi.“
Fráveitugjald og vatnsgjald hefur
ekkert með fasteignaskatta að gera og
það er verið að slá ryki í augu bæjarbúa
með því að segja að verið sé að lækka
þessi gjöld til að koma til móts við
hækkun á fasteignaskatti.
MUNUR Á ÞJÓNUSTU-
GJÖLDUM OG SKÖTTUM
Vatnsgjald og fráveitugjald eru
þjónustugjöld en ekki skattur eins og
fasteignaskatturinn og það gilda reglur
um það hversu mikið má innheimta. Í
raun má aðeins innheimta raunkostnað
við þessa þjónustu.
Fráveitugjaldið lækkar reyndar ekki á
milli ára en vatnsgjaldið gerir það sem
segir að það hafi verið oftekið og gætu
bæjarbúar því í raun látið kanna hvort
ástæða væri til að gera kröfur um
endurgreiðslu á ofteknum gjöldum.
Þó svo vatnsgjald, lóðarleiga,
fráveitugjald og sorp hirðugjald sé
innheimt á sama seðli þá er þarna verið
að blanda saman sköttum og afgjaldi af
veittri þjónustu.
Til að afvegaleiða eru öll þessi gjöld
nefnd fasteignagjöld, en þá mætti líka
bæta við rafmagni, hitaveitu og
tryggingum svo eitthvað sé nefnt.
Gríðarleg hækkun fasteignaskatts
Hækkar að jafnaði um 22% en sums staðar um allt að 30%
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n