Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Blaðsíða 16
16 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023
/rifrestaurant FJÖRÐUR
VERSLUNARMIÐSTÖÐRIF.IS
Verið velkomin
á RIF, í hjarta
Hafnarfjarðar!
Chorkiv í
Úkraínu vill
verða
vinabær
Shmatko Volodymyr Petrovych,
borgar stjóri í úkraínsku borginni
Chorkiv í Ternopil héraðinu hefur sent
Rósu Guðbjartsdóttur bréf þar sem
óskað er eftir vinabæjarsambandi við
Hafnar fjörð.
Í bréfinu er hernaðarástandinu lýst en
svo segir að í ljósi áhuga á að byggja
upp alþjóðlegar tengingar og tengingar
við Evrópuþjóðir, sé óskað eftir
vinabæjarsambandi við Hafnarfjörð til
að auka samvinnu, deila reynslu, m.a. í
orku málum, fjármálum, menningar
tengdri ferðaþjónustu, listum, íþróttum,
menntun, heilsugæslu, og sérstaklega í
rafrænni stjórnsýslu.
Er Rósu bæjarsjóra boðið að
heimsækja Chortkiv sem hefur mjög
svipaðan fjölda íbúa og Hafnarfjörður.
Fyrstu sögulegu heimildir um borgina
eru síðan 1522.
Auk norræna vinabæjasambandsins
,sem telur vinabæi í Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Danmörku og síðast í
Eistlandi, á Hafnarfjörður vinabæina
Ilulissat í Grænlandi, Tvøreitru í
Færeyjum, Cuxhaven í Þýskalandi og
Boading í Kína.
Hefur sambandið við þessa bæi verið
mismikið. Tengingin t.d. við Kína hefur
ekki verið mikil en þó kom þaðan
sendinefnd árið 2017.
Dómkirkjan í Chortkiv.
Lj
ós
m
.:
Po
st
er
rr
hafnfirski fréttavefurinn
Sendu inn fréttaskot á: fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Skoðaðu nýjustu fréttirnar ljósmynd dagsins eða leitaðu í fréttasafninu
www.fjardarfrettir.is