Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Síða 12

Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Síða 12
12 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023 Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar var samþykkt í desember sem og fjárhags­ áætlun annarra sveitarfélaga. Meiri­ hlutinn dásamar stöðuna og mærir störf sín þrátt fyrir það að reglulegar tekjur standa ekki undir reglulegum útgjöld­ um, eignasala dekkar mismuninn eins og vanalega, nema hvað? En það er erfitt að meta árangur nema í samanburði við önnur sambærileg sveitar­ félög. Ágætt sjónarhorn er að bera saman rekstur og efnahag á hvern einstakling í stað þess að bera saman heildartölur. Berum saman þrjú stærstu sveitarfélögin Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð. Mesta skattheimtan er í Hafnarfirði 1.265 þúsund á mann, minnst er hún í Kópavogi 1.142 þúsund en Reykjavík er örlítið dýrari 1.171 þúsund á mann. Rekstrarkostnaður er hæstur í Hafnar­ firði 1.153 þúsund á mann en lægstur í Kópavogi 1.031 þúsund á mann og aftur er Reykjavík á milli með 1.133. Stærstur hluti rekstrargjalda sveitar­ félaga eru laun og launatengd gjöld. Það vekur athygli að af þessum þremur stærstu sveitarfélögum landsins fer lægra hlutfall kostnaðar í laun í Hafnar­ firði eða rúm 57% en hlutfallið er ríflega 60% hjá Reykjavík og Kópa­ vogi. Launakostnaðurinn er samt lægstur hjá Kópavogi þar sem hann er 622 þúsund krónur á hvern íbúa, 666 þúsund á hvern íbúa Hafnarfjarðar, hæstur er hann í Reykjavík 685 þúsund. Heildarskuldir á hvern íbúa eru langhæstar í Hafnarfirði þar sem hver íbúi skuldar 1.637 þúsund krónur, hver Kópavogsbúi skuldar 1.255 þúsund og hver Reykvíkingur skuldar 1.368 þúsund. Skýringin á meintum árangri er fyrst og fremst auknar álögur á Hafnfirðinga. Ef það er markmiðið, þá hafa Sjálf­ stæðisflokkur og Fram sókn náð mikl­ um árangri. Til hamingju með það. En það er ljóst af þessum samanburði að í Hafnarfirði eru mikil tækifæri til þess að bæta reksturinn og gera hann sjálfbæran. Höfundur er bæjarfulltrúi. Skattpíningin er mest í Hafnarfirði í samanburði við Kópavog og Reykjavík Jón Ingi Hákonarson Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar í samanburði við Kópavog og Reykjavík Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar var samþykkt í desember sem og fjárhagsáætlun annarra sveitarfélaga. Meirihlutinn dásamar stöðuna og mærir störf sín þrátt fyrir það að reglulegar tekjur standa ekki undir reglulegum útgjöldum, eignasala dekkar mismuninn eins og vanalega, nema hvað? En það er erfitt að meta árangur nema í samanburði við önnur sambærileg sveitarfélög. Ágætt sjónarhorn er að bera saman rekstur og efnahag á hvern einstakling í stað þess að bera saman heildartölur. Berum saman þrjú stærstu sveitarfélögin Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð. RVK Kóp Hafnarfjörður Efnahagur í þús.kr. á íbúa Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Rekstrartekjur 1.171 1.142 1.265 Rekstrargjöld 1.133 1.031 1.153 Þar af laun og launatengd gjöld 685 622 666 Eignir 1.886 1.744 1.938 Eigið fé 517 489 301 Heildarskuldir og skuldbindingar 1.368 1.255 1.637 Veltufjármunir 222 126 172 Langtímakröfur 65 98 126 Hreinar skuldir 1.082 1.032 1.339 Íbúafjöldi 1. des 141.447 40.729 30.981 Mesta skattheimtan er í Hafnarfirði 1.265 þúsund á mann, minnst er hún í Kópavogi 1.142 þúsund en Reykjavík er örlítið dýrari 1.171 þúsund á mann. Rekstrarkostnaður er hæstur í Hafnarfirði 1.153 þúsund á mann en lægstur í Kópavogi 1.031 þúsund á mann og aftur er Reykjavík á milli með 1.133. Stærstur hluti rekstrargjalda sveitarfélaga eru laun og launatengd gjöld. Það vekur athygli að af þessum þremur stærstu sveitarfélögum landsins fer lægra hlutfall kostnaðar í laun í Hafnarfirði eða rúm 57% en hlutfallið er ríflega 60% hjá Reykjavík og Kópavogi. Launakostnaðurinn er samt lægstur hjá Kópavogi þar sem hann er 622 þúsund krónur á hvern íbúa, 666 þúsund á hvern íbúa Hafnarfjarðar, hæstur er hann í Reykjavík 685 þúsund. Heildarskuldir á hvern íbúa eru langhæstar í Hafnarfirði þar sem hver íbúi skuldar 1.637 þúsund krónur, hver Kópavogsbúi skuldar 1.255 þúsund og hver Reykvíkingur skuldar 1.368 þúsund. Skýringin á meintum árangri er fyrst og fremst auknar álögur á Hafnfirðinga. Ef það er markmiðið, þá hefur Sjálfstæðisflokkur og Framsókn náð miklum árangri. Til hamingju með það. En það er ljóst af þessum samanburði að í Hafnarfirði eru mikil tækifæri til þess að bæta reksturinn og gera hann sjálfbæran. Út er komin platan Með þér – David del Puerto Vocal Works. Þar flytja mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski klassíski gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui verk sem spænska tónskáldið David del Puerto samdi öll sérstaklega fyrir þau. David er handhafi Þjóðarverðlauna Spánar í tónlist. Með þeim Guðrúnu og Javier leika einnig í nokkrum lögum fiðluleikarinn Elena Jáuregui, óbóleikarinn Inma Veses Gil og sellóleikarinn Beatriz Perona. Platan var valin sem Disco de oro (gulldiskur) í nóvemberhefti tónlistar­ tímaritsins Melómano á Spáni 2022. Í gagnrýni blaðsins segir: ,,Fágað tungumál Del Puerto, sérlega nautna­ legt, nýtur fyrirtaks tjáningar tvíeykisins Guðrúnar Ólafsdóttur og Javier Jáuregui, sem eru reyndir flytj endur verka hans fyrir söng og klassískan gítar. Íslenska mezzó sópransöngkonan fer með fallegri og seiðandi rödd inn í hið kyrrláta tímaleysi chiaroscuro, bliku tunglsljóssins og nána dulúð, sem eru gegnumgangandi í ,,Poema del ocaso y la noche“. ABU Records gefur plötuna út en Árni Möller sá um upptökur og hljóðvinnslu. Samstarf þeirra Guðrúnar, Javiers og David del Puerto nær aftur til ársins 2013 og er þessi plata því uppskera margra ára samvinnu þar sem tónskáldið hefur samið tónlist fyrir flytjendurna sem þau hafa flutt á ýmsum tónleikum á Spáni og víðar. David samdi einnig titilhlutverkið í óperunni Lilith, luna negra handa Guðrúnu og var óperan frumflutt á Spáni árið 2019 þar sem Javier lék í hljómsveitinni. Þau Guðrún og Javier hafa verið með velheppnaða Sönghátíð í Hafnarborg undanfarin ár. Hægt er að hlusta á plötuna á Spotify og öðrum streymisveitum. Ný hljómplata Með þér – David del Puerto Vocal Works Flensborgarhöfn Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.