Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Blaðsíða 14

Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Blaðsíða 14
14 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023 Auglýsingar í Fjarðarfréttum komast til skila Blaðinu er dreift inn á öll heimili í Hafnarfirði, það liggur frammi í helstu matvöruverslunum og er aðgengilegt á netinu. sími 896 4613 gudni@fjardarfrettir.is www.fjardarfrettir.is/auglysingar Ráðgjafar KPMG fá reglulega spurn­ ingar frá viðskiptavinum um erfðamál. Eins og haft er eftir Benjamin Franklin einum af „landsfeðrum“ Banda ríkjanna þá er ekkert öruggt í lífinu nema dauði og skattar. KPMG er með sér­ fræðinga á sínum snærum sem hafa sérhæft sig í slíkum málum, þ.e. ekki dauð anum sem slíkum heldur þeim laga­ flækjum sem geta fylgt upp­ gjöri dánarbúa. Ráðgjafar KPMG aðstoða m.a. við gerð erfðaskráa og erfðafjárskýrslna, skiptingu dánarbúa og veita ráðgjöf varðandi erfðamál, þ.m.t. fyrirframgreiðslu arfs. ERFINGJAR Erfingjar skiptast í skylduerfingja, lögerfingja og bréferfingja. Skyldu­ erfingjar eru maki (hjónaband áskilið) og börn. Lögerfingjar eru skylduerfingjar og önnur skyldmenni arfláta, þ.e. foreldrar, foreldrar foreldranna, systkini og af kom­ endur þeirra. Bréferfingjar eru erfingjar skv. erfðaskrá. Skylduerfingjar erfa arfláta í föstum hlutföllum, maki ávallt 1/3 og börn 2/3. Ef arfláti á engan maka, taka börn allan arf og að sama skapi ef arfláti á engin börn tekur maki allan arf. Ef arfláti á enga skylduerfingja þá taka aðrir lögerfingjar við eignum hans samkvæmt ákvæðum erfðalaga, nema arfláti eigi bréferfingja. Arfláti sem á ekki skylduerfingja má með erfðaskrá ráðstafa öllum eignum sínum til þess eða þeirra sem hann sjálfur óskar. Ef arfláti á skylduerfingja má hann aðeins ráðstafa þriðjungi eigna sinna til þess eða þeirra sem hann sjálfur óskar. Þau sem eiga skylduerfingja, börn eða hjúskaparmaka, geta þannig ekki svipt maka og börn erfðarétti sínum. SAMBÚÐARAÐILAR Milli hjóna er gagnkvæmur erfðaréttur og langlífari maki á rétt til setu í óskiptu búi. Sambúðarfólk getur undir engum kringumstæðum feng­ ið leyfi til setu í óskiptu búi. Sambúðarfólk á ekki rétt á arfi eftir hvort annað nema gerð hafi verið erfðaskrá þess efnis sem samrýmist viðkomandi reglum erfða­ laga. Rétt er að benda á að ef sam­ búðarfólk gerir erfðaskrá sína réttilega þá greiðir eftirlifandi sam búðaraðili ekki erfðafjárskatt af slíkum arfi. ERFÐASKRÁ Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta gert erfðaskrá en hún þarf að vera skrifleg og uppfylla ákveðin skilyrði varðandi þær upplýsingar sem þar þurfa að koma fram. Algengustu ákvæði í erfðaskrá eru heimildarákvæði um setu langlífari maka í óskiptu búi sem og ákvæði um ráðstöfun eigna með erfðaskrá. Einnig er nokkuð algengt að í erfðaskrá sé ákvæði þess efnis að arfur sé séreign erfingja. ERFÐAFJÁRSKATTUR Greiða skal erfðafjárskatt af öllum fjárverðmætum sem erfingjar hins látna fá við skipti á dánarbúi, en þó greiðir langlífari hjúskaparmaki engan erfða­ fjárskatt. Erfðafjárskattur er 10%. Engan erfðafjárskatt skal greiða af fyrstu 5.757.759 kr. í skattstofni dánarbús. Undanþágan gildir ekki um fyrirframgreiðslu arfs. SKIPTI DÁNARBÚA Til að lesendur geti betur glöggvað sig á hver arfshluti hvers erfingja verður við skipti á ímynduðu dánarbúi ætlum við að leiða út arfshluta erfingja Jóns og Gunnu sem eru gift og eiga eitt barn saman. Jón á auk þess tvö börn frá fyrra sambandi og Gunna eitt barn. Alls eiga Jón og Gunna því fjögur börn. Hrein eign búsins er 100.000.000 kr. Nú gerist það að Jón fellur frá og þá þarf fyrst að skoða hvort Gunna megi sitja í óskiptu búi. Gunna þarf að fá samþykki stjúpbarna sinna til að fá að sitja í óskiptu búi nema Jón og Gunna hafi gert erfðaskrá þar sem langlífari maka er heimilað að sitja í óskiptu búi. Gunna má alltaf skipta dánarbúinu þrátt fyrir ákvæði erfðaskrár um heimild til setu í óskiptu búi. Hún getur líka byrjað á að sitja í óskiptu búi og skipt búinu síðar, að hluta eða öllu leyti. Eftirlifandi maki situr ekki í óskiptu búi: Ef við gefum okkur að Gunna ákveði að skipta búinu, þá yrði arfshlutur Gunnu og barnanna sem hér segir: Heildareign dánarbúsins 100.000.000 Helmingshluti maka 50.000.000 Arfur maka (1/3) 16.666.650 Arfur barna (2/3) 33.333.350 Eignarhluti maka eftir skipti 66.666.650 Eignarhluti barns beggja hjóna 11.111.117 Eignarhluti barns 1 (Jónsbarn) 11.111.117 Eignarhluti barns 2 (Jónsbarn) 11.111.117 100.000.000 Nú gerist það að Gunna fellur frá. Til einföldunar gerum við ráð fyrir að dánarbú Gunnu eigi sömu fjárhæð og eignarhluti hennar var eftir skipti á dánarbúi Jóns, þ.e. 66.666.650 kr. Arfur barnanna yrði sem hér segir: Eignarhluti dánarbús Gunnu 66.666.650 Eignarhluti barns beggja hjóna 33.333.325 Eignarhluti barns Gunnu 33.333.325 Alls fá erfingjar Jóns og Gunnu: Sameiginlegt barn 44.444.441 Barn Gunnu 33.333.325 Barn Jóns 1 11.111.117 Barn Jóns 2 11.111.117 100.000.000 Eftirlifandi maki situr í óskiptu búi fram að andláti Ef Gunna hefði ákveðið að sitja í óskiptu búi fram að andláti þá hefði arfur milli hjóna fallið niður. Skipti dánarbús Jóns og Gunnu hefði þá verið eftirfarandi: Eignarhluti dánarbús Jóns 50.000.000 Arfur barns 1 (Jónsbarn) 16.666.667 Arfur barns 2 (Jónsbarn) 16.666.667 Arfur barns beggja hjóna 16.666.667 Eignarhluti dánarbús Gunnu 50.000.000 Arfur barns Gunnu 25.000.000 Arfur barns beggja hjóna 25.000.000 Alls fá erfingjar Jóns og Gunnu: Sameiginlegt barn 41.666.667 Barn Gunnu 25.000.000 Barn Jóns 1 16.666.667 Barn Jóns 2 16.666.667 100.000.000 Ekki er tekið tillit til greiðslu erfða­ fjárskatts við útleiðslurnar hér að framan. Ljóst er að það er að mörgu að hyggja þegar kemur að uppgjöri dánarbús. Hér hef ég stiklað á stóru varðandi þau atriði sem skipta máli í slíku uppgjöri. Ég hvet öll þau sem koma að slíkum málum til að leita aðstoðar sérfróðra aðila, þannig að allt fari fram samkvæmt lögum og reglum. Höfundur er verkefnisstjóri hjá KPMG Law. Guðrún Björg Bragadóttir Hvernig skiptast eignir dánarbúa milli erfingja? Guðrún Björg Bragadóttir, verkefnisstjóri hjá KPMG Law skrifar - Kynning Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.