Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 3
Veiðimaðurinn Nr. 106
Málgagn stangaveiðimanna Ágúst 1981
Ritstjórar: Víglundur Möller og Magnús Ólafsson
Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavíkur
Afgreiðsla: Háaleitisbraut 68, 105 Reykjavík
Simi: 86050 - Prentun: LITBRÁ-offset - Kr. 33
SVFR
Stjóm Stangaveiöifélags Reykjavíkur:
Formaður: Karl Ómar Jónsson
Varaformaður: Ólafur G. Karlsson
Ritari: Karl Guðmundsson
Gjaldkeri: Jón G. Baldvinsson
Fjármálaritari: Halldór Þórðarson
Varastjórn: Sverrir Þorsteinsson
Ólafur Ólafsson
Guðmundur Guðmundsson
Framkv.stjóri: Friðrik D. Stefánsson
Skrifstofumaður: Hanna M. Vigfúsdóttir
Þar er allur sem unir
Þegar þetta tölublað Veiðimannsins kemur
til lesenda verður langt liðið á veiðitímann.
Þetta er skrifað í upphafi sólmánaðar,
re'tt um Jónsmessustrauminn. Eins og allir
stangveiðimenn munu vita, er þess
jafnan vcenzt, að þá komi stórar laxagöngur
í margar ár. Þetta er engin þjóðtrú í
sambandi við Jónsmessuna, heldur stað-
reynd, sem sannazt hefur um aldaraðir,
trúlega frá upphafi byggðar á Islandi.
A þessu er auðskilin skýring. Þegar þessi tími
er kominn, er hitastig vatns og sjávar
venjulega orðið nógu hátt til þess að eðlishvöt
laxins segi honum að nú skuli hann hraða
för sinni til fyrri heimkynna, til þess
að gegna þar þjónustunni við lífið og
viðhald cettstofnsins. Hindranir, sem hann
ber ekki skyn á og kann því ekki og getur
oft ekki með nokkru móti varazt, valda því,
að hann ncer ekki því takmarki, sem
náttúran cetlar honum með þessari
undarlegu cevintýraferð. Og þótt hann
komist á leiðarenda og Ijúki hlutverki sínu
eru yfirgncefandi líkur á því, að hann
eigi ekki afturkvcemt úr þeirri ferð, sem þá
tekur við. Hindrunin á vegi hans til
hrygningarstöðvanna er fyrst og fremst
maðurinn með öll sín vélráð, en á leiðinni til
sjávar tekur náttúran sjálf við með
algeru miskunnarleysi. Það er eins og hún
hugsi:,, Þú hefur lokiðþví sem þér var cetlað,
og nú verður þú sjálfur að sjá þér farborða.
Ef þú kemst aftur iil sjávar og nœrð þér eftir
þessa svaðilför, máttu svo sem fara
aftur upp ána að sumri eða síðar og hrygna,
en hlekkist þér á, er það þitt mál. Það kemur
lax í lax stað. Eg sé um það. Enginn
er ómissandi“.
Eins og fram kemur í upphafi þessa
máls er þetta skrifað svo snemma á
veiðitímanum, að engum getum, sem
marka megi, verður að því leitt, hvernig
veiðast muni í sumar. Því rceður bceði
laxagengd og veðurfar. Sú skoðun hefur
komið fram, að kuldinn vorið og sumarið
1979 muni hafa áhrif á lífsferil laxins
ncestu árin frá þeim tíma. Talið er að ncesta
ár á eftir köldu sumri gangi smálax
VEIÐIMAÐURINN
1