Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 6
Uppáhalds-
flugan mín
Veiðimaðurinn bað nokkra góðkunna stangaveiðimenn að svara spurningunni
„Hver er uppáhaldsflugan þín?“. Um leið og blaðið birtir hér fyrstu svörin,
eru þeim sendar þakkir, sem voru svo vinsamlegir að svara. Áformað er að
beina fleiri spurningum í þessum dúr til lesenda blaðsins, því að á þann hátt
munu fleiri fást til að láta frá sér heyra, og blaðið verða fjölbreytilegra og
skemmtilegra, svo sem hin ágætu svör, sem birtast hér að neðan, sýna svo
ljóslega.
Björn J. Blöndal
Of marglyndur til að
geta svarað
Laugarholti, 16. maí 1981.
Ágætu ritstjórar.
Þakka bréf ykkar, sem ég fékk í gær. í
nótt varð ég andvaka, og upp úr því fór ég
að hugsa um svar mitt. En komst að þeirri
niðurstöðu, að í raun og veru gæti ég ekki
svarað. Er of marglyndur til þess.
Fyrsta flugan, sem ég eignaðist, var
Black Goldfínch. Hana gaf mér Sigurður
Fjeldsted í Ferjukoti. Black Goldfinch er
víst írsk vatnafluga.
Þegar ég gat ekki fengið hana lengur,
voru það Black Doctor, Silver Grey, já og
líka Þrumur og Eldingar, sem ég tók ást-
BjörnJ.
Blöndal
fóstri við. Og jafnan reyndust þær vel.
í fyrsta sinn, sem ég veiddi í Hítará, fór
Teitur á Brúarfossi með mér upp að
Langadrætti. Á leiðinni þangað spurði ég
Teit, hvaða flugu ég ætti að reyna. Svar
hans man ég vel: „Islendingar veiða ekki á
flugu. Ertu ekki með maðka?“
„Nei,“ svaraði ég.
„Þá færð þú engan fisk.“
Við komum að Langadrætti. Setti
stöngina saman, festi hjólið, dró línuna í
lykkjumar og festi tauminn við hana. Svo
4
VEIÐIMAÐURINN