Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Qupperneq 12
veiðifélagi Akraness, sem hafði Hauka-
dalsá á leigu í áratugi, að hluta til, á móti
Guðbrandi Jörundssyni, og síðar Stanga-
veiðifélagi Keflavíkur. í Haukadalsá
stundaði ég veiðar í samfleytt 31 sumar.
Fórum við þangað eina til þrjár ferðir ár-
lega til veiða. Félagar mínir þar hafa verið
margir gegnum árin. Eg vil nefna Björgvin
Schram, Hans heitinn Kragh, Harald
Gíslason, Magnús Jóhannsson, Reyni
Olafsson og marga fleiri, allt góða félaga.
Nú er þessi á komin í hendur erlends
auðfélags (eins og Laxá í Dölum). Það er
Jón G. Baldvinsson
Ekki auðvelt að svara
Reykjavík, í júní 1981.
Kæru ritstjórar Veiðimannsins,
Víglundur og Magnús.
Ég þakka ykkur fyrir bréfið og nota
tækifærið til að óska ykkur góðs gengis
með „blaðið okkar”.
Já, hver sé uppáhaldsflugan mín.
Spurningin er svo sem ósköp stutt og
sakleysisleg, og einhverjir geta sjálfsagt
verið skjótir til svara-og átt auðvelt með
það, en það á „því miður” ekki við um mig.
Ég yrði fljótur til svars við spurning-
unni, hver sé uppáhaldsveiðiáin mín, eða
jafnvel, hver af veiðistöngunum mínum sé
mín uppáhaldsstöng, en þetta horfir svo-
lítið öðruvísi við, hvað flugurnar varðar -
eða hvað?
raunalegt til þess að hugsa, ef afkomendur
okkar eiga þess ekki kost að veiða í íslensk-
um laxám og njóta þeirrar gleði, sem mín
kynslóð hefur haft af verunni við árnar
„okkar“.
Að lokum óska ég „Veiðimanninum“
og hinum ágætu ritstjórum hans langra
lífdaga. Marga ánægjustundina hefur
þetta blað veitt mér og öðrum veiði-
mönnum, þó að segja megi, að ekki höfum
við fóðrað það of vel!
Ritað í byrjun skerplu 1981.
Þegar maður kafar djúpt í litla hug-
skotið og rifjar upp fyrir sér, hvaða flugu
maður valdi sér, einhvern tíma, þegar illa
gekk að fá laxinn til að taka, skyldi maður
þá ekki geta komist að því, hver sú fluga sé,
sem maður oftast grípur til, þegar „tísku-
flugan“ bregst? Ég held, að einmitt sú
fluga, sem þá er gripið til og hnýtt á línu-
endann, sé uppáhaldsflugan okkar hvers
og eins, það er sú fluga, sem gripið er til,
þegar laxinn er orðinn vandlátur og við
þurfum virkilega að vanda valið.
10
VEIÐIMAÐURINN