Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 16

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 16
Kennsla í fluguköstum í Laugardalshöll (íjósm. RH). Kennsla í fluguköstum Kennsla í fluguköstum og meðferð veiði- tækja, sem kennslu- og kastnefnd S.V.F.R. hefur séð um í nafni félagsins, hefur nú staðið í um það bil 20 ár. Fyrsti formaður nefndarinnar var Halldór Erlendsson, sem af sínum alkunna dugnaði kom þessu starfi á laggirnar. Fljótlega kom Stangveiðifélag Hafnarfjarðar inn í starfíð, og um leið og Kastklúbbur Reykjavíkur var stofnaður varð hann þriðji aðilinn að samstarfmu. Flugukastkennslan hefst á hverju hausti í Laugardalshöllinni í byrjun október og stendur til aprílloka eða í 7 mánuði. Kennslunni er skipt niður í 5 hluta, sem við köllum námskeið, og stendur hvert þeirra að jafnaði 5 sunnudagsmorgna frá kl. 10,20 fyrir hádegi til 12,00. Tvö námskeið eru fyrir áramót, en þrjú frá áramótum til aprílloka. Þátttaka hefur yfírleitt verið góð og sérstaklega frá áramótum, þegar sól fer að hækka á lofti og vonin um veiði fer að glæðast hjá mönnum. Það er því full ástæða til að beina því til væntanlegra þátttakenda í þessum nám- skeiðum, að þeir noti vel tímann að haust- inu. Þá er rétt að leggja á það ríka áherslu við væntanlega þátttakendur að gefa sér góðan tíma til að læra þessa fögru íþrótt, sem fluguköstin eru, en ekki að koma að- eins til að fá nasasjón af því, sem þeir annars gætu lært og tileinkað sér. Ástvaldur Jónsson 14 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.