Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 22

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 22
Við fiskuðum í kompaní, og vorum bara saman í hyljunum. Það gekk ágætlega. Stórlaxinn í Brúará. Eg veiddi í sjö ár í Brúará með Parísar- bræðrunum, þeim Þorbergi og Runólfi. Þar voru þeir stórir. Það var afskaplega skemmtileg veiði. Það var hending að fá lax undir 10 pundum. Þetta var mest allt frá 12 og upp í 25 pund. Eg fékk marga, sem voru 25 pund. Það er nú orðið langt síðan þetta var. Eg missti einn stóran lax í Brúará, upp undir þar sem Hagaós kemur niður. En það var ekki mér að kenna, að ég missti hann. Hann lagðist, það var ólánið. Mér fór að leiðast og fór að taka í hann, og þá slitnaði girnið. Þetta var á flugu nr. 6/0. Eg sá þennan lax vel, hann hefur alltaf verið 36-38 pund. Gífurlegur lax. Ég var með hann á svona í klukkutíma, var búinn að þreyta hann svolítið, en svo lagðist hann þarna í kant- inn, og ég réði ekkert við það. Eitt sumarið lá rosalega stór fískur á Hættunni, sem svo var kallað. Hann tók fluguna hjá mér einu sinni, en fór á fleygi- ferð á hlið, og ég dró út úr honum. Meira komst ég ekki í tæri við hann. Kjartan Þorbergsson setti líka í hann, en missti hann niður fyrir kantinn, og þar lagðist hann fastur. Og þegar þeir voru búnir að bisa við hann víst í klukkutíma, þá fór Kjartan og sótti bátinn. En laxinn fór á fleygiferð niður og báturinn á eftir, og það endaði með því, að laxinn sleit af hjólinu. Einu sinni var Þorbergur með lax á þarna í þrjár klukkustundir. Þetta var á breiðunni rétt ofan við Hættuna. Hann lagðist, og það var aldrei hægt að aka honum nema fetið. „Ætlarðu að vera með hann í nótt?“, sagði ég. A endanum voru tennurnar búnar að sarga sundur girnið. Hann sást aldrei, en hann hefur verið vænn. Morgunstund í Vatnsdalsá. Ég fór tvisvar í Vatnsdalsá eftir að Tryggvi Ofeigsson hætti með hana, í bæði skiptin á ágætum tíma. Hún getur verið ákaflega skemmtileg. Þegar þetta skeði, vorum við Björn Eggertsson saman. Við vorum með tjald með okkur og tjölduðum klukkan fjögur um nóttina. „Farðu bara að sofa“, sagði ég við Björn „ég skal passa upp á að mæta klukkan sjö“. Auðvitað lagði ég mig ekki neitt. I ánni voru þá líka fransmenn, og leið- sögumaður með þeim. Svo er ég mættur við Armótin tíu mín- útur fyrir sjö. Það er mjög skemmtilegur hylur. Þá kemur leiðsögumaðurinn með þá frönsku. Eg sagði honum, að það væri venjan, þegar ekki væri nein skipting og frjálst að veiða hvar sem væri, að þá ætti sá réttinn, sem á undan kæmi að hylnum. Samþykkti hann það. Ég sagði honum, að þeir gætu komið eftir þrjá tíma og tekið við. En ef þeir ekki kæmu þá, héldi ég bara áfram. Ég fór svo að veiða. Skömmu síðar kom Konráð á Haukagili þama til mín á jepp- anum sínum. Hann spurði mig, hvort hann mætti ekki fara með jeppann niður á brotið og þvo hann. Jú, jú, ég gaf leyfi til þess. Ég var að fiska á flugu. Og þegar flugan rann þvert fyrir ofan brotið, tók hann. „Hvað voðalega liggja þeir nálægt jeppanum, þetta hef ég aldrei séð á minni 20 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.