Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 23

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 23
ævi“, sagði þá Konráð. Laxinn tók svona tvo tða þrjá metra ofan við jeppann. Og svo hélt ballið áfram, þar til ég var búinn að taka ellefu, alla á flugu. Þá sagði ég við Konráð: „Nú skaltu bara velja þér einn fisk í soðið“. Ég man alltaf eftir því, hvað hann var voðalega kurteis, því að þeir voru margir stórir þarna, allt upp í 20 pund, en hann tók bara einn svona 10-11 punda. Ogbauð okkur svo í mat á eftir. Þessa laxa fékk ég á tæpum fjórum tímum, ég hætti, þegar frakkamir komu. Ég hafði mest gaman af því að sjá, hvernig frakkarnir veiddu. Þeir voru með flugu og flot. Það þótti mér skrítið, ég hafði aldrei séð svoleiðis aðfarir. Þetta kann ég ekkert á og hef aldrei notað. Flugulaxinn í Heljarþrym. Stærsta flugufískinn minn fékk ég í Heljarþrym í Stóru-Laxá. Ég var þá að veiða með þeim Sigurði frá Haukagili og Guðmundi frá Miðdal. Þetta var í september, alveg síðustu veiði- dagarnir. Ég var búinn að koma þama oft um sumarið. Þessi stóri fískur var búinn að liggja í Heljarþrym, alltaf á sama stað, frá því snemma um sumarið. Þá var hann kominn þarna. Hann fór ekki lengra. Það var samkomulag, að Sigurður veiddi á maðk, en við Guðmundur á flugu. Sigurður fór með maðkinn sinn upp í hálsinn á hylnum, þeir lágu stundum alveg uppi í hálsinum. En við Guðmundur byrjuðum að kasta flugunni. Við sáum, hvar vinurinn var, hvar hann kafaði. Svo fékk ég tvo laxa á flugu. Þá var Guðmundur kominn með spón. Hann kastaði honum um allan hylinn, en það tók enginn hjá honum. Þá setti ég á Green Highlander nr. 4/0, tvíkrækju, bara svona að gamni mínu. Ég kastaði henni upp, og hún hefur farið dálítið djúpt. Og það var ekkert annað en það, að það er tekin roka beint upp í háls- inn til Sigurðar. Það voru þessi djöfuls læti. Og þá sagði Guðmundur: „Nei, helvíti ertu heppinn. Nú ertu kominn í þann stóra“. Ég var svo að dunda við hann í hálfan annan tíma, því að ég vildi ekki missa hann. Þetta var 27 - 28 punda fískur, geysilega stór, grútleginn. Hann hafði farið fram á fluguna, svo að hún stóð niðri í kverkum. Það var ómögulegt að missa hann, nema slíta. Ég þurfti hníf til að ná fluginni úr honum. Guðmundur hafði farið upp á Iðuna meðan á þessu stóð. Hann var alltaf með poka á bakinu. Ég vildi gefa honum í soðið, þegar hann kom til baka, en hann sagðist ekki þurfa þess, hann væri með einn ágætan lax í pokanum. En við fengum aldrei að sjá þennan eina. Guðmundur var feiknalegur veiði- maður, ágætur flugumaður og alveg spesialisti á spóninn. Hefur hann ekki skvett? Ég spurði einu sinni marga veiðimenn: „Hvernig er það nú, þegar þið eruð að veiða á flugu, hefur hann ekki stundum skvett hjá ykkur?“. Allir viðurkenndu þetta nema einn. Svo hvíslaði hann að mér seinna: „Bless- aður, hann hefur oft gert þetta“. Ég var nefnilega að segja þeim, að þegar hann skvetti, þá væru þeir að draga fluguna frá laxinum, þegar hann ætti að vera dauðadæmdur. Þegar verið er að VEIÐIMAÐURINN 21

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.