Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 25
aftan við sporðinn á honum. Ég renndi
maðki til þeirra. Ég hef aldrei séð annað
eins, hvað hann var nú vitur þessi stærsti.
Þegar maðkurinn var kominn svona meter
frá honum, þá skellti hann sér þvert á hina
og fór alltaf með þá niður eftir. Hann lét þá
fylgja sér. Þeir tóku aldrei.
Ég er sannfærður um, að sá stærsti hefur
verið langt yfir 30 pund.
Þetta var fyrir mörgum árum.
Það er yfírleitt venjan með svona stóra
físka, að þeir eru ekki í tökuskapi. Það er þá
helzt, að þeir láti blekkjast af flugu eða
spæni, en ég held að þeir séu bara hræddir
við maðkinn. Seint á sumrin er spónninn
sennilega sterkastur á þá, sérstaklega í
miklu vatni.
Metveiðin í Miðfjarðará.
Ég held, að mér fínnist Miðfjarðará
skemmtilegasta áin, sem ég hef veitt í, og
eru þær þó margar góðar. Það er óum-
deilanlegt, að ég hef hvergi fengið eins
mikla og skemmtilega veiði og þar.
Það var seinni part sumars 1962. Þá
héldu veiðimennirnir til á Skeggjastöðum.
Stefán Hilmarsson var með mér, við
vorum með tvær stengur. Við komum of
seint í ána, þeir voru búnir að draga. Þá
voru átta stengur í ánni.
Við Stefán fengum Vesturána ogkeyrð-
um niður að Túnstreng. Menn, sem voru
að fara úr ánni og höfðu verið í Túnstreng
um morguninn, sögðu, að þar væri enginn
fískur.
Þarna lenti ég í skemmtilegustu töku,
sem ég hef nokkurn tíma komizt í, held ég.
Ég setti í 21 í Túnstrengnum og landaði 19.
Ég fékk þá alla á flugu, það voru fjórar
flugur, sem ég notaði.
Það kom þarna rútubíll með ferðafólk
frá Akureyri, fímmtíu manns, þar á meðal
eitthvað af veiðimönnum, og bílstjórinn
Kristjáfl VÍð Elliðaámar (ljósm. ólafur F. Magnússon).
bað um leyfí, hvort fólkið mætti horfa á.
Ég sagði bara, að mín væri ánægjan að hafa
sem flesta áhorfendur, þeir trufluðu mig
ekki neitt, þeir mættu bara raða sér upp og
vera til kvölds, ef þeir vildu.
Siggeir á Skeggjastöðum kom niður að
á og tók laxinn, þegar ég var búinn að
landa, setti hann í plast og bar upp í bílinn
minn. Svo kom fólk af fleiri bæjum þarna,
svo að það var mikill mannskapur í kring-
um mig.
Svo fór ég niður á Hlíðarfossbreiðu,
setti þar í sjö og landaði þeim öllum. Þeir
voru líka allir á flugu.
Ég fékk því 26 físka á flugu þennan
fyrsta eftirmiðdag. Flugurnar voru Blue
Charm, Black Doctor, Black Fairy og
fleiri. Hann tók þær nokkuð jafnt. Ég
þreytti laxinn aldrei á því að vera alltaf
með sömu fluguna, heldur skipti um, því
að takan varð miklu skarpari, þegar ég kom
með nýja flugu.
Það voru vænir laxar þarna innan um,
ekki þó neitt sérstaklega.
Það þarf enginn að segja mér, að þessir
fiskar hafí komið þarna í matartímanum,
þeir hafa verið þarna um morguninn líka.
I þessari þriggja daga veiðiferð fékk ég
63 laxa, þar af voru 44 á flugu. Þetta er
mesta veiði, sem ég hef fengið í einni ferð,
VEIÐIMAÐURINN
23