Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 26
og algert met hjá mér að fá 26 á flugu á
hálfum degi.
Mig minnir, að Stefán hafi fengið
sautján. Það var nú gott hjá honum, því að
hann var frekar óvanur.
Þær geta verið skrítnar.
Það var eitt sinn, að ég var leiðsögumaður
með amerískum veiðimanni í Laxá í
Leirársveit. Hann hét Weldt og var talinn
einn bezti veiðimaður Bandaríkjanna.
Hann er nú dáinn, blessaður. Hann var
ægilega góður veiðimaður, og mikið var
gaman að físka með honum.
Við vorum við Gránesfljótið.Konan
hans var með stöng líka. Og þá skeður það,
að hann segir mér, að konan sín sé svo
slæm í bakinu, hvort ég vilji ekki físka á
stöngina hennar í þessa tvo tíma, sem eftir
voru. Konan ætlaði að taka kvikmynd af
okkur á meðan við veiddum báðir.
Svo fóru leikar, að ég setti í þrjá, alla
stóra, og landaði þeim, en hann fékk
engan.
En þá brá svo við, að frúin var allt í
einu orðin góð í bakinu, það var ekki
nokkur hlutur að henni, og hún hló þessi
lifandis ósköp. Hún sagðist aldrei á sinni
ævi hafa skemmt sér svona vel, að sjá
karlinn sinn láta í minni pokann, því að
það væri alveg óvenjulegt.
Svona geta þær nú verið skrítnar,
maður.
En ástæðan fyrir þessari velgengni
minni var auðvitað sú, að ég þekkti veiði-
staðinn svo vel og vissi nákvæmlega um
tökustaðina.
Það er gæfumunurinn.
Eg fékk oft góða veiði í Laxá í Leirár-
sveit. Hún er alveg gullá að koma í. Eg
hafði hana sjálfur í þrjú ár.
Húkk.
Við Halldór Erlendsson fórum einu sinni
saman í Blöndu. Við fengum sinn fískinn
hvor. Eg man ekki, hvað hann fékk marga,
sá sem var með þriðju stöngina, við þekkt-
um hann ekki neitt, en hann „tók“ vel hjá
honum. Það var allt í loftköstum niður alla
breiðuna. Eg hef aldrei séð annað eins.
Við Halldór ákváðum að koma aldrei
þarna meira. Okkur langaði ekki í þessa
veiði. Þetta var bara hreinn viðbjóður. Við
hættum um miðjan dag.
Ef lítið vatn er í Blöndu, getur maður
veitt þarna heiðarlega á maðk. En eins og
þetta hefur verið, fiska þeir bezt, þegar áin
er kolsvört, svo að fískurinn sér hvorki
maðk né flugu. Þá er það spónn og alls-
konar dót.
Það hefur stundum verið þannig, að
laxinn kemst ekki upp í Svartá, hann er
allur tekinn niðri í Blöndu. Svo hefur nú
stiginn í Blöndu stundum verið í ólagi.
En nú er víst komið meira eftirlit með
þessu.
Fyrstu árin héldu menn, að ég húkkaði
og fískaði ekki heiðarlega. En ég hef aldrei
húkkað físk viljandi, alltaf farið hundrað
prósent eftir settum reglum og verið góður
við mína veiðifélaga. Eg held, að það
finnist ekki heiðarlegri veiðimaður hér á
landi.
Eg var með Svartá í þrjú ár. Það var góð
veiði í henni öll mín ár. Svartá er mjög
skemmtileg, ákaflega góð fluguá.
Happadagur í Hallá.
Það var hér um árið, að mér var boðið að
kaupa stöng í nokkra daga í Laxá í Aðaldal.
Sá, sem bauð, kvaðst hafa tvær stengur,
sem hefðu losnað vegna forfalla, og bauð
mér aðra.
„Því ekki það, alveg sjálfsagt“, sagði ég
24
VEIÐIMAÐURINN