Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 28
Frá opnun Norðurár
Samkvæmt venju komu stjórnarmenn
Veiðifélags Norðurár og Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, ásamt eiginkonum,
saman í veiðihúsinu við Norðurá 31. maí
s.l., daginn áður en veiðin hófst í ánni.
Við þetta tækifæri voru sameiginleg
hagsmunamál rædd, en einnig slegið á
létta strengi og treyst þau vináttubönd,
sem myndazt hafa gegnum árin.
Samstarf þessara félaga hefur nú staðið
óslitið í 36 ár. Fyrsti samningur þeirra í
milli var undirritaður 7. febrúar 1946. Þá
hófust þau ánægjulegu samskipti, sem
S VFR hefur alla tíð síðan átt við Veiðifélag
Norðurár.
Þórður Kristjánsson, form. Veiðifélags Norðurár,
og Karl Ómar Jónsson, form. SVFR, rceða málin.
Magnús Þorgeirsson fylgist með af athygli.
Guðmundur Guðmundsson segirÞórði, Magnúsi og
Sveini Jóhannessyni á Flóðatanga veiðisögu.
Anna, kona Þorsteins á Brekku, og Hjördís
Magnúsdóttir.
Þorsteinn Þórðarson á Brekku og Sigurður
Fjeldsted frá Ferjukoti.
Sverrir Þorsteinsson og Þórdís Fjeldsted í Ferju-
koti rceðast við (tjósm. MÓ).
26
VEIÐIMAÐURINN