Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 30

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 30
hola, hylur, iða, kvörn, leira, lón, lygna, ólga, pollur, renna, straumur, strengur, stokkur og svelgur. Ain fellur á leið sinni til sjávar að meðaltali tæplega 6 metra á hvern kílómetra, eða 60 sm á hverja 100 metra eftir ánni. Sumir fossanna í ánni voru laxinum hindrun, en aðrir töfðu hann á göngu upp ána. Skammt ofan ósasvæðis- ins er Skuggafoss, sem var laxi erfiður þröskuldur, þegar vatnsmagn í ánni og önnur skilyrði voru honum óhagstæð. Fyrst mun hafa verið reynt að bæta úr þessum ágalla árið 1911, með því að sprengja í fossinum. Það er þó loks árið 1964, að tekinn er í notkun fullkominn fískvegur í Skuggafossi. Aður fyrr komst laxinn lengst upp ána að Sveðjufossi, sem er í 21 km fjarlægð frá sjávarósi. í fossinn var gerður fískvegur árið 1967, sem opnaði laxi leið í efri hluta árinnar. Arið 1969 var reist á vegum Vatnsmiðlunarfélags Langár og Gljúfurár stífla í útrennsli Langavatns, til að safna vatni og þannig bæta og jafna sumarvatn árinnar og Gljúfurár. Tilkoma þessa mannvirkis hefur dregið nær alveg úr ísruðningi í ánni á vetrum, sem áður var árviss og olli tjóni á fískstofni árinnar. Stóraukið landnám laxins. Auk fyrmefndra framkvæmda hefur verið keppt að því, eftir að Sveðjufoss var greið- fær laxinum, að gera nokkra aðra fossa ofan Sveðju fískgenga með lagfæringu, og stefnt að því að koma göngufiski allt inn að Langavatni. Er um sex fossa að ræða á þessu svæði. Komist laxinn inn að stíflu við Langavatn, stækkar veiðisvæði árinnar um 15 km. Það jafngildir tvöföldun á stangveiðisvæði hennar fyrir daga físk- vegar í Sveðjufossi. Þá hafa verið gerðar ýmsar breytingar á árfarvegi Langár og rennsli hennar, til að létta fiski göngu um ána og búa honum í öðrum tilvikum hvíld- arstaði (veiðistaðir) og festa í sessi eldri veiðistaði. Þá hefur verið sleppt miklum fjölda seiða í árkerfið, smáseiða og stærri laxaseiða, og þau sett í fískgenga hluta árinnar og ófiskgenga svæðið, inn á afrétt. Ennfremur hafa verið útbúnar tvær sleppi- tjarnir fyrir gönguseiði, til að tryggja betri árangur í endurheimtu á laxi úr sjó. Er hagnýtt í þessu skyni hvíldarhólf í fisk- veginum í Sveðju, og hinsvegar var steypt sérstök sleppitjörn neðar í ánni. Veiðiréttindi í eigu erlends aðila. Fyrir daga þessarar umsvifamiklu físk- ræktar, sem hófst í smáum stíl fyrst um 1960, höfðu veiðiréttindi jarða við Langá verið um áratuga skeið í eigu erlends aðila, og veiði með stöng verið stunduð í ánni frá því fyrir aldamótin síðustu, eins og í borg- fírsku laxveiðiánum, Grímsá, Norðurá og Þverá. Samfelldar skýrslur eru til um stangveiði í Langá allt þetta tímabil, og mun það vera einsdæmi, að slík gögn séu fyrir hendi. Um 120 ár eru liðin frá því að fyrstu ensku veiðimennirnir hófu stang- veiði í ánum í Borgarfirði. Byrjaði það í Grímsá og fylgdu í kjölfarið aðrar stóru laxveiðiárnar í héraðinu. Til eru ýmsar minjar frá fyrri tíð um dvöl breskra veiði- manna í Borgarfirði, svo sem veiðimanna- hús, ýmsir munir og fleira. Áður en stangveiði hófst í Langá hafði verið veitt þar með netum, eins og í öðrum ám hér á landi. Um aldamótin kaupir skoskur maður, að nafni Campbell, ung- ann úr veiðiréttindum í Langá ásamt íbúð- arhúsi jarðarinnar Langárfoss, sem var notað sem veiðimannahús og er enn í slíkri notkun. Síðar voru kvíarnar færðar út í þessu skyni, og komust öll lax- og silungs- veiðihlunnindi í Langá frá sjávarósi að ármótum Langár og Gljúfurár í hendur erlends aðila. Reyndar varð breyting með 28 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.