Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 32

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 32
Ljóst er, að veiðifyrirkomulagið hefur haft í för með sér, að nokkur veiðimanna- hús eru við ána og eigendur hafa sjálfír gert vegi meðfram ánni til að auðvelda veiði- mönnum för að veiðistöðum. Laxveiðin. Eins og fyrr greinir liggur fyrir vitneskja um stangveiði í Langá allt frá sl. alda- mótum. Á tímabilinu 1900-1947 var árleg veiði að meðaltali 331 lax. Meðalveiði áranna 1961-1969 var 564 laxar, og sama tala fyrir síðastliðin 10 ár (1970-1979) er tæplega 2.000 laxar, sem er tæp sexföldun á meðalveiði tímabilsins 1900-1947 og rúmlega þreföldun miðað við tímabilið 1961-1969. Yfir landið í heild jókst hins- vegar veiðin um 79% síðastliðin 10 ár miðað við árin 1961-1969. Þá er ógetið um laxveiðina í Urriðaá, en þar veiddust 1979 202 laxar. Forustumenn veiðimála. Jóhannes Guðmundsson, bóndi, Ána- brekku, er formaður veiðifélagsins og hefur verið það frá upphafí. Hann var einnig formaður fískræktarfélagsins allan tímann, sem það starfaði. Er Jóhannes því búinn að gegna formennsku í þessum sam- tökum í rúmlega 20 ár. Aðrir í stjórn félagsins eru Helgi Guðjónsson, Leirulæk, og Magnús Guðjónsson, Krossnesi. Formaður vatnsmiðlunarfélagsins er Jónas Tómasson, bóndi, Sólheimatungu, er tók við af Magnúsi Thorlacíus, hrl., er hann lést. Jóhannes á Ánabrekku hefur átt sæti í stjórn vatnsmiðlunarfélagsins frá upp- hafí. Af eðlilegum ástæðum hafa veiðimála- stjóri og aðrir starfsmenn Veiðimálastofn- unar haft töluverð afskipti af málefnum Langársvæðisins allt frá því að stofnunin tók til starfa árið 1946 og til þessa dags. Hafa þessir aðilar reynt að stuðla að og tryggja framgang veiði og ræktunar á grundvelli laga um lax- og silungsveiði. Heimildir: Veiðimálastofnun. Orkustofnun: Vatnamælingar. Stundaglas stangaveiðimannsins Unaðsstundum óðum fcekkar, okkar sumri hallar skjótt. Stundaglasið látlaust lcekkar, leitt hve tíminn rennur fljótt. Ólafur G. Karlsson 30 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.