Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 34

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 34
gáði þó jafnan afturfyrir mig til að gæta að því, hvort ég væri á réttri leið. Þá sá ég, að í steinkeri eða lóni uppi á bakkanum voru þrír laxar, og fannst mér, að ég væri búinn að veiða þá áður. Ég þekkti staðinn. Þarna hafði aldrei veiðst lax síðan fjölskylda mín kom að Hesti. Lengri var þessi draumur ekki. Daginn eftir vöknuðum við í dögun eins og til stóð og bjuggum okkur til veiðanna. Ég sagði Birni nú drauminn, og við ákváð- um að fara eftir honum. Þessi staður er ofar öllum veiðistöðum fyrir Hestlandi, í svo- kölluðu Norðlingafljóti, neðarlega í því, skammt fyrir ofan brotið, þar sem fljótið endar, rétt fyrir ofan stóran stein í ánni. Þegar við komum á staðinn, sáum við fljótt, að þarna var lax. Ekki man ég hve marga laxa Björn veiddi, en ég veiddi strax þrjá, og eftir nokkra bið kom sá fjórði á. Þegar ég var að vaða með hann í land, átti sér stað fullkomin endurtekning á því, sem mig dreymdi nóttina áður, og ég verð að viðurkenna, að ég varð furðu lostinn, þegar ég gerði mér grein fyrir því, enda hefur slíkt ekki hent mig, hvorki fyrr né síðar. Við kölluðum þennan stað Hellufljót. Hann reyndist nokkuð góður í nokkur ár, en smátt og smátt fylltist botninn af gróðri og lax hætti að vera þar. Seinna mun þó hafa veiðst á svipuðum slóðum. Eins og ég sagði, hafði aldrei veiðst lax þarna síðan fjölskylda mín kom að Hesti 1917. Við höfðum heyrt sögusagnir af því, að áður hafí verið stundaður þarna ádrátt- ur. Ég held þó, að við höfum almennt véfengt þær sögur, en kannski langað til að trúa þeim. Ég vissi líka dæmi þess, að ísstíflur mynduðust efst í fljótinu í Norð- lingavaði, og þegar flóðið braust fram og rak með sér stífluna, rifnuðu torfumar í botninum og við það urðu til ker, kvamir og rennur, kjörstaðir fyrir lax. Veturinn 1934-35 var ég að heiman í skóla og vissi því ekkert um það, sem þarna kann þá að hafa gerst. Kannski hef ég haft af því einhvem pata, að þarna hafí átt sér stað breytingar á botninum um veturinn. Ég vil geta þess, að þennan stað þekkti ég mætavel frá æskudögum mínum, því að þarna var áður mitt eftirlætis skauta- svell. Hafi ég í undirmeðvitund haft grun um, að þama hafí átt sér stað breytingar á botninum, þá þekkti ég landslag og að- stæður það vel, að segja má, að ég hafí vitað, hvemig ég myndi standa að veiðum þarna. Má vera, að ekkert sé óeðlilegt við það, að draumurinn og veruleikinn féllu á sama hátt inn í umhverfið. Aftur á móti hef ég velt þeirri spurningu fyrir mér: Hvers vegna var tala laxanna sú sama í draumnum og veruleikanum? Var það tilviljun? F or sí ðumy ndin SVFR hefur haft Leirvogsáá leigu mörg undanfaritt ár. Hún ásína tryggu aðdáendur meðalstangaveiði- manna, sem fara þangað til veiða á hverju sumri. Þótt veiðin geti verið misjöfn í Leirvogsá, einkum í þurrkatíð, eins og reyndar má segja um ýmsar aðrar ár, þá koma dagar og tímabil, semgefa ágceta veiði. Við Leirvogsá er víða friðsælt ogfagurt um að litast, eins og þeir vita, sem þar hafa veitt. Þeir munu þó fleiri, sem ekki hafa kynnzt þessu af eigin raun, þótt áin sé við bcejardyr Reykvtkinga. Myndin er tekin ofan af brekkubrúninni, sem gncefir yfir Hornhyl og Birgishyl. A miðri mynd sér t veiði- húsið, og gegnt þvt er Helguhylur, en Grafareyrar ofar. I baksýn tróna Skálafell og Móskarðshnúkar. Ljósm. RH. 32 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.