Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 36
Það tók dálítinn tíma, en þá tók ég eftir
því, að maðurinn óð í land og rölti á stað-
inn, sem ég hafði verið á. En ég hafði ætlað
mér að halda þar áfram. Byrjaði hann að
kasta, en ekki man ég, hvort hann hafði
kastað tvisvar eða þrisvar, þegar ég sá, að
það var lax á hjá honum. Hann byrjaði
strax að draga laxinn í land, en fiskur var
ekki á sama máli.
Ég hrópaði til hans, að hann yrði að
þreyta laxinn. Hann gerði eins og ég sagði
honum.
Að því búnu hélt ég áfram að greiða
flækjuna hjá mér. Þá sá ég, hvar drengur-
inn kom hlaupandi með háf, þegar laxinn
var farinn að nálgast landið. Oð hann út og
gerði sig líklegan til að háfa laxinn. Háfur-
inn var stór silungsháfur, en laxinn 12
pund (eins og síðar kom í ljós). Ég fór því
niður að ánni og bauðst til að hjálpa við að
landa fískinum. Síðan lagðist laxinn, og ég
tók hann upp og færði í land og rotaði.
Dáðumst við að fiskinum og spjölluðum
saman litla stund. Því næst tók hann laxinn
og fór þangað, sem þeir höfðu verið áður.
Ég fylgdist ekki með þeim félögum um
stund, en ég verð að viðurkenna, að ég var
hálf fúll, því að ég taldi, að þessi fiskur
hefði verið að ganga þarna á staðinn og að
ég hefði getað fengið hann.
Þegar ég stóð upp og ætlaði að byrja
veiði, tók ég eftir því, að þeir félagar gengu
upp frá ánni og upp í bíl, og sá ég þá ekki
meir.
Mér féllust hendur, í þess orðs fyllstu
merkingu, og settist á þúfu og tottaði píp-
Una í gríð og erg. Ég hef litið út í fjarlægð
eins og gúanóverksmiðja í fullri vinnslu, og
var skapið eftir því.
Engan fékk ég laxinn, en það sá ég,
þegar ég hætti, að ég var með síðasta Toby-
spóninn á línunni hjá mér, því að ég hafði
misst einn sjálfur.
Mér datt í hug sagan um Halldór
Laxness, þegar hann var að víkja fyrir bíl á
þröngum vegi og missti sinn bíl út af. Þá
spurði hann hinn bílstjórann: ”Get ég gert
nokkuð meira fyrir yður?“
Kastmót SVFR 1981
Kastmót SVFR var haldið á túninu milli
Suðurlandsbrautar og Miklubrautar
laugardaginn 30. maí og hófst það kl.9
fyrir hádegi. Veður var mjög gott, norð-
vestan gola, hiti ca. 8 stig. Keppt var í 5
greinum.
Fluga einhendis.
m.
1. Ástvaldur Jónsson........... 52,15
2. Bjarni Karlsson ............ 47,07
3. Björgvin Jónsson............ 42,15
Fluga tvíhendis.
1. Ástvaldur Jónsson........... 62,30
2. Bjarni Karlsson ............ 54,80
3. Björgvin Jónsson............ 51,28
Lengdarköst með spinnhjóli lóð 7,5 gr.
1. Ástvaldur Jónsson........... 75,07
2. Gísli J. Helgason........... 61,42
3. Bjarni Karlsson ............ 59,57
Lengdarköst með spinnhjóli lóð 18 gr.
1. Ástvaldur Jónsson.......... 105,43
2. Gísli J. Helgason........... 94,35
3. Björgvin Jónsson............ 90,53
Lengdarköst með rúlluhjóli lóð 18 gr.
1. Ástvaldur Jónsson........... 98,34
2. Bjarni Karlsson ............ 79,02
3. Björgvin Jónsson............ 76,93
34
VEIÐIMAÐURINN