Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 37
Veiðipósturinn
Þáttur með þessu heiti mun framvegis
verða í blaðinu, eftir því sem efni standa til.
Þar verða birt bréf fré lesendum um
hvaðeina, sem viðkemur stangaveiði.
Einnig eru lesendur hvattir til að láta frá
sér heyra, ef þeir hafa einhverjar athuga-
semdir eða tillögur varðandi blaðið.
Þá er lesendum gefinn kostur á að senda
blaðinu fyrirspurnir, sem reynt verður
eftir föngum að svara, og leitað til fróðustu
manna, eftir því sem ástæða er til.
Bréfritarar skulu geta nafns og heimilis-
fangs, sem haldið verður leyndu, sé þess
óskað.
Margir veiðimenn hafa það fyrir venju að
blóðga laxinn á veiðistað, t.d. með því að
skera í tálknin, því að annars sezt blóð í
holdið og veldur þar dökkum blettum, einsog
sjá má t.d., þegar laxinn er reyktur.
Veiðimenn ættu að fara meðlaxinn afsíðis
áður en hann er blóðgaður. Það er hvimleitt
fyrir þá, sem á eftir koma, að sjá blóðpolla á
árbakkanum.
Silungur skemmist fljótt, ef hann er ekki
meðhöndlaður á re'ttan hátt. Það er ekki nóg
að blóðga silung, það þarf að slœgja hann
sem fyrst.
Og hér er fyrirspurn, sem blaðinu hefur
borizt frá Rafni Hafnfjörð:
Er heimilt að fleygja slógi úr silungi
í ár eða vötn?
Er það æskilegt?
Eða er það hættulegt, t.d. með tilliti
til hringorms?
Blaðið leitaði upplýsinga um þetta hjá
Þór Guðjónssyni veiðimálastjóra.
Hann sagði, að slóg cetti að grafa eða
brenna, en alls ekkifleygja því í ár eða vötn.
Bœði er sóðaskapur að því, en hitt ekki
þýðingarminna, að með því er stuðlað að
hringrás sníkjudýra, sem fyrirfinnast í
vatnafiski. Er hér einkum um að ræða hring-
orm (sem hreiðrar um sig í holdi fisksins),
bandorm (í maganttm) og svonefndan máva-
maðk (utan á innyflunum).
Ef mávur kemst í slógið, geta egg þessara
sníkjudýra borizt í vatnið með driti fuglsins.
Eggin verða að lirfum í vatninu, krabbadýr
eta lirfurnar, en silungur og aðrir vatna-
fiskar eta stðan krabbadýrin og fá þannig
sntkjudýrin í sig. Þar stöðvast hringrásin,
nema mávurinn etifiskinn eða slóg úr honum,
eða eti krabbadýrin án milligöngu fisks.
Við eigum að sjálfsögðu aðgera það, sem í
okkar valdi stendur, til að rjúfa þessa
hringrás.
M.Ó.
VEIÐIMAÐURINN
35