Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 38

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 38
Arni Isaksson Fiskrækt og fiskeldi Inngangur Ahugi manna á fískrækt og fískeldi hefur aukist mjög mikið á undanförnum árum. Ljóst er, að möguleikar til ræktunar með ýmsum stærðum eldisseiða eru verulegir, og nauðsynlegt er, að bændur og aðrir,sem að ræktun standa, geri sér nokkra grein fyrir hvaða aðferðir eru vænlegastar til árangurs á því vatnasvæði, sem þeir eiga aðild að, og viti hvar upplýsingar er að fá í sambandi við fiskræktarmálin. I eftirfarandi greinargerð er reynt að upplýsa um helstu þætti fískræktar og fisk- eldis og vísað á sérfræðinga Veiðimála- stofnunar í viðkomandi málaflokki. Allar upplýsingar, sem hér eru gefnar, eru aðeins grundvöllur, sem hægt er að byggja á, og skal mönnum bent á að hafa samband við sérfræðinga, ef óskað er frekari upp- lýsinga. Skilgreining á hugtökum er snerta fískrækt og fískeldi Fiskrækt: Hverskonar aðgerðir, sem ætla má að skapi eða auki af- rakstur veiðivatns (fiskvega- gerð, seiðaslepping, veiði o.fl.). Fiskeldi: Seiðaeldi laxfiska, bleikju- eldi, sjóeldi laxfiska, hafbeit laxfiskæ, fiskhald í stöðuvötn- um. Arni Isaksson LAXARÆKT 1. Slepping gönguseiða Rétt er að leggja áherslu á að sleppa gönguseiðum eingöngu í ár, þegar ljóst er, að ræktun með ódýrari seiðum kemur ekki til greina. Af- koma smáseiða, sem sleppt er á ólax- genga hluta laxveiðiánna, getur verið mjög góð, og slík framkvæmd er afar hagkvæm, þar sem í sumum tilfell- um má notast við sleppiseiði, sem eru rúmlega startfóðruð. Göngu- seiði henta mun betur í ár, þar sem uppeldisskilyrði eru fullnýtt og seiðin eiga að ganga rakleitt til sjáv- ar, svo að ekki verði um samkeppni að ræða við villtan fisk. Einnig er ljóst, að afrakstur gönguseiðaslepp- ingar verður mun meiri í á, þar sem 36 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.