Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 39
veitt er hátt hlutfall af heildargöngu
laxa og íjöldi veiddra laxa er ekki
mjög mikill.
Gönguseiðum skal eingöngu
sleppa eftir aðlögun í sleppitjörn.
Hérna getur verið um að ræða tjörn
á landi, flotbúr í á eða flotkví á lóni.
Seiðin eru sett í viðkomandi að-
lögunaraðstöðu í maí á Suðurlandi,
en í júní á Norðurlandi. Þau eru
síðan fóðruð í mánaðartíma fyrir
sleppingu.
Gönguseiði hafa heimst allt upp
í 8% í stangveiðiá (Elliðaár, 1976),
en yfirleytt hefur verið erfitt að gera
sér grein fyrir árangri, þar sem seiðin
hafa verið ómerkt.
Laxarækt í laxlausri á byggir ein-
göngu á gönguseiðum, og mun verða
rætt um það síðar í tengslum við
hafbeit, en svo nefnist búskapur,
sem byggir á sleppingum alinna
gönguseiða í sjó og heimtum þeirra
sem fullvaxinna laxa.
2. Slepping smáseiða
Smáseiði má flokka niður í kvið-
pokaseiði, startfóðruð seiði og
sumarseiði. Séu uppeldisskilyrði
góð, er hugsanlegt að nota allar
seiðastærðir, en þó má gera ráð fyrir,
að árangur sé öruggari, ef seiðin eru
orðin nokkuð stálpuð.
Smáseiðum skal aðeins sleppa í
ólaxgengan hluta ár, í fisklaus stöðu-
vötn eða annarsstaðar, þar sem lífs-
skilyrði eru góð fyrir seiði. Seið-
unum skal dreifa vel á grýttari hluta
ánna í talsverðan straum.
3. Bygging fískvegar
Forsenda þess, að fiskvegur sé
byggður yfir hindrun í laxveiðiá, er
sú, að uppeldisskilyrði séu góð þar
fyrir ofan. Best er að ganga úr skugga
um þetta með smáseiðasleppingu í
ófiskgenga hlutann áður en ráðist
er í framkvæmdir.
Laxastigar hafa verið byggðir í
fjölda íslenskra straumvatna, og
árangur er ótvíræður, þegar að-
stæður eru góðar. Gleggstu dæmin
eru veiðiaukning í Langá á Mýrum,
Laxá í Leirársveit og Selá í Vopna-
firði á síðastliðnum tuttugu árum.
4. Stjórnun umhverfisþátta
Æskilegt er, að rennsli og hitastig í
laxveiðiánum sé sem jafnast árið um
kring. Margar af ánum koma úr
stöðuvötnum, og miðlunarmann-
virki eru víða fyrir hendi. Rétt er að
benda á, að slík mannvirki má nýta
til miðlunar að vetrarlagi, og er þá
æskilegt, að útrennsli sé við botn
stöðuvatnsins. Slík ráðstöfun nýtir
hærri vatnshita við botn eftir að ísa
leggur og getur dregið úr hættu á
ísruðningi í ánum, sem hefur nei-
kvæð áhrif á uppeldisskilyrðin.
Ennfremur er minni hætta á stór-
flóðurn, sem skaðað geta seiði og
hrogn.
5. Upplýsingar
Nánari upplýsingar veita sér-
fræðingar Veiðimálastofnunarinnar,
Teitur Arnlaugsson og Arni Isaks-
son, og Þórir Dan Jónsson í útibúi
stofnunarinnar í Borgarnesi.
LAXELDI
1. Hafbeit úr eldisstöð
Slíkur búskapur byggir á því, að
laxeldisstöð sé nærri sjó og geti
sleppt gönguseiðum beint til sjávar.
VEIÐIMAÐURINN
37