Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 42

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Side 42
Vötn og veiði í fyrravor kom út á vegum Landssam- bands veiðifélaga bæklingur með ofan- greindu heiti. Er þar að fínna glöggar og þarflegar upplýsingar um silungsveiðivötn á suður- og vesturlandi frá og með Rangár- þingi og vestur á Snæfellsnes. Nú er komið annað hefti af þessu riti og er þar getið 45 veiðivatna á svæðinu frá norðanverðu Snæfellsnesi, um Arnarvatnsheiði, Dala- sýslu, Vestfírði, Húnavatns- og Skaga- fjarðarsýslu. Hingað til, eða fram á síðustu ár, hefur áhugi stangveiðimanna beinzt meira að laxinum en silungnum, þótt þar sé efalaust um nokkrar undantekningar að ræða. En með síhækkandi verði á laxveiði- leyfum má gera ráð fyrir að þeim fari fjölgandi, sem snúa sér að silungsveiði. Þeim sem hafa hug á því, geta framan- nefndir bæklingar komið að góðum notum. Areiðanlega er fjöldi góðra silungsvatna víðs vegar um land, sem margir veiðimenn vita ekki um, og þótt sumir hafi heyrt ein- hver þeirra nefnd, vita þeir ekki nákvæm- lega hvar þau eru né hvernig þau liggja við samgöngum, hvert þeir eiga að leita um leyfi til veiðanna o.s.frv. Um þetta allt má fræðast mikið í nefndum bæklingum og þar eru einnig ýmis góð ráð og leiðbein- ingar, sem veiðimenn þurfa ávallt að hafa í huga, hvort sem þeir eru að veiða lax eða silung. Það væri freistandi að taka hér upp orð- rétt sumt, sem sagt er í ritinu um sam- skipti veiðimannsins við náttúruna og um- gengni við ár og vötn. En þar eð bannað er að birta með nokkrum hætti texta eða kort úr þessum bæklingum án sérstaks skriflegs leyfis, skal það bann virt hér. Hins má geta, að það sem þar er sagt um síðastnefnd efni er mjög í samræmi við það sem veiðimenn hafa þráfaldlega verið minntir á hér í Veiðimanninum. Það ber vott um óafsak- anlegt hugsunarleysi, þegar menn kasta t.d. frá sér gimisspottum eða flækjum, sem bæði kindur og fuglar geta flækt sig í og liðið af kvalafullan dauða. Þess eru því miður dæmi. Flöskubrot eru skepnum líka stórhættuleg og valda stundum alvar- legum meiðslum. Þau eru heldur ekki hættulaus fyrir veiðimenn, sem á eftir koma. Þeir sem skilja eftir rusl, af hvaða tæi sem er, brennimerkja sjálfa sig sem sóða, sem eiga ekki skilið að fá að koma nálægt á eða veiðivatni. Menn eiga að skilja svo við veiðistað, að þar sjáist ekki svo mikið sem bréfsnifsi eftir þá. Um þetta skal svo ekki farið fleiri orð- um, en veiðimönnum ráðlagt að lesa þessa bæklinga vandlega. Það getur aldrei orðið nema til ánægju oggóðs, jafnvel þótt menn ætli sér ekki á silungsveiðar. Þarna eru ekkert síður þarflegar áminningar fyrir laxveiðimenn, því að umgengni sumra þeirra við árnar er síður en svo til fyrir- myndar. Þeir mættu áreiðanlega bæta ráð sitt í þessu efni. V.M. 40 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.