Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Side 6

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Side 6
6 Skipulagsmál Hötuðborgarsvæðisins 111985 OO^OGSP^ Góð frétt fyrir eigendur nýrra og gamalla húsa Thoro-efni í stað hefðbundins múrverks og málningar - úti og inni. VERKIN TALA Steinprýði hf. hefur í meira en áratug séð íslenskum húseigendum fyrir THORO-efn- unum, sem reynst hafa einkar vel hérlendis. THORO-efni hafa verið notuð á mörg glæsi- leg einbýlishús og einnig ýmsar opinberar bY99ingar, svo sem Hugvísindahús Háskól- ans og hvolfþak Laugardalshallarinnar. STYRKUR THORO-EFNANNA THORO-efnin eru úr fínmöluðum kvarts- steinum. sementi og akrýlefnum, sem fyila í holur og sprungur. þekja mannvirkin og verja gegn veðrun, án þess að hindra nauðsynlega útöndun flatarins, en mynda þunna, sterka steinhúð utan á mannvirkíð. Að baki THORO-efnanna liggur meira en 70 ára löng saga umfangsmikilla tilrauna og rannsókna. MISMUNANDI ÁFERÐ Hægt er að velja mismun- andi áferð flatarins, t.d. svipaða áferð og poka- pússning gefur, þar sem borðaför koma í Ijós, slétta áferð, samsvar- andi sléttri múrhúðun, eða hraunáferð, eins og með hefðbundinní hraunhúðun. 8 LITIR FÁANLEGIR THORO-efnin fást í átta mismunandi litum og grófleika, allt eftir þörfum og smekk hvers og eins. EINNIG Á ELDRI HÚS THORO-ef nin eru sérlega hentug við endurnýjun eldri steinhúsa Cömul hús sem hlotið hafa THORO-meðhöndlun. bera því glæsilegt vitni. NOKKRIR KOSTIR THORO-EFNANNA THORO-efni hafa þá kosti við yfirborðsmeðhöndlun húsa, að viðloðun þeirra er góð, raki á greiða leið út úr veggnum, en efnin verja hann gegn utan- aðkomandi vatni og raka. - Veggurinn andar. Ending er því mun meiri en þegar um hefðbundinn frágang er að ræða. THORO-efnin vatnsþétta alia steinsteypu, nýja og gamla, hleðslustein, strengjast- eypu, múrstein og hleðslugrjót. Þau þétta hvers konar steypugalla og skemmdir frá- bærlega vel, útiloka vatn og raka úr kjöllur- um og öllum steyptum flötum og veita örugga vörn gegn frostskemmdum, moln- un og veðrun. THORO-efnin bæta útlit mannvirkja. ÞEGAR PENINGAR ERU AF SKORNUM SKAMMTI Húsbyggjendur þekkja nauðsyn þess að gæta pyngjunnar vel. Steinprýði hf. fól Hagvangi hf. að gera samanburð á hagkvæmni notkunar THORO-efna og hefðbundinni notkun múr- húðunar og málningar. Niðurstöður eru þær, að unnt er að spara allt að 40% í beinhörðum peningum meðTHORO-efnum - og við ábyrgjumst gæðin. ÞEKKING OG ÞJÓNUSTA THORO-efnin eru mjög einföld í notkun. Hjá Steinprýði hf.. Stórhöfða 16, Reykjavík, eru fyrírliggjandi ítaríegar upplýsingar um notkun þeirra. Sérþjálfaðir fagmenn eru Jika tiltækir til að leiðbeina húseigendum. ■■ steinprýði hf. Stórhöfða 16,110 Reykjavík. HB Sími 83340 og 84780.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.