Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 11

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 11
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985 11 Frá rannsóknarlögreglustjóra ríkisins. Um skipan lög- gæslu og rannsóknarvalds á höfuðborgar- svæðinu Hinn 1. júlí 1977 urðu all róttækar breytingar á skipan rann- sóknarvalds á höfuðborgarsvæðinu, sbr. lög nr. 107-109,1976. Stofnuð var rannsóknarlögregla ríkisins með lögum nr. 108, 1976, og er henni falið að hafa með höndum lögreglurannsókn- ir brotamála í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarneskaupstað, Garðakaupstað, Hafnarfirði og Kjósarsýslu, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 108,1976. Pá er svo kveðið á í 2. mgr. sömu greinar að rannsóknarlögregla ríkisins skuli hafa með höndum rannsóknir brotamála í Keflavík, Grindavík, Njarðvíkum, Gullbringu- sýslu og á Keflavíkurflugvelli þegar dómsmálaráðherra ákveð- ur. Löggæsla og lögreglustjórn á svæðum þeim, sem upp eru talin í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 108, 1976 skiptist á átta embætti, en sum embættin eru í höndum eins og sama embættismannsins. Nán- ar er skiptingin sem hér segir: Yfirmaður almennrar löggæslu í Kjósarsýslu er sýslumaðurinn í Kjósarsýslu, en hann er jafnframt bæjarfógeti í Seltjarnar- neskaupstað, Garðakaupstað og Hafnarfirði og þar með yfir- maður almennrar löggæslu í þeim kaupstöðum. Bæjarfógetinn í Kópavogi er yfirmaður almennrar löggæslu í Kópavogi, en í Reykjavík fer lögreglustjórinn í Reykjavík með yfirstjórn al- mennrar löggæslu. Rannsóknarlögreglustjóri ríkisins hefur með höndum stjórn löggæslu og lögreglurannsókn meiri háttar brotamála á höfuðborgarsvæðinu. Skipting landsins í lögsagn- arumdæmi, þ.e. sýslur og kaupstaði er lögbundin og svo er einnig um skipun rannsóknarlögreglu ríkisins. Löggæslu og lögreglustjórn á svæðinu er skipt með lögum á tvennan hátt, annars vegar landfræðilega og hins vegar eftir málefnum þ.e. brotategendum. Almenn löggæsla og lögreglu- stjórn er staðbundin þannig að lögreglustjórar hver í sínu lögsagnarumdæmi fara með stjórn hennar. Löggæsla og stjórn rannsókna og meðferð meiri hátta brota heyrir undir embætti rannsóknarlögreglustjóra ríkisins og er að því leyti óbundið af lögsagriarumdæmum, sbr. 4. gr. laga nr. 108, 1976. Löggæslu og lögreglustjórn í hverju lögsagnarumdæmi er því skipt milli viðkomandi lögreglustjóra og rannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins. í lögum um rannsóknarlögreglu ríkisins nr. 108, 1976 og reglugerð nr. 253, 1977 um samvinnu og starfsskipt- ingu rnilli lögreglustjóra og rannsóknarlögreglustjóra ríkisins er í megin atriðum mörkuð verkaskipting á milli staðbundinna lögreglustjóra og rannsóknarlögreglustjóra ríkisins. Sam- kvæmt því starfa við embætti hinna staðbundnu lögreglustjóra rannsóknardeildir sem annast rannsókn umferðarslysa, brota á umferðarlögum, áfengislögum, veiði-, friðunar-, skotvopna- og veitingalöggjöf, heilbrigðisreglugerð og staðbundnum reglugerðum og samþykktum. Málum til brottnáms ólögmætu ástandi, brotum á ákv. alm. hgl. um nytjastuld á ökutækjum, ökugjaldssvik, minni háttar líkamsmciðsl og minni háttar eignaspjöll. Auk þess rannsókn annarra mála og málaflokka, þar sem viðurlög við broti geta eigi farið fram úr sektum og rannsóknarlögreglustjóri ríkisins ákveður að höfðu samráði við viðkomandi lögreglustjóra.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.