Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 7

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 7
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985 7 RagnarJúlíusson, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur Um skólahald á höfuðborgar- svæðinu Skólamálin eru áreiðanlega ekki meðal auðveldari þáttanna þegar unnið er að skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins í heild og reynt að undirbúa fyrir framtíð- ina með sem skynsamlegustum hætti. Aðalatriðið í því sambandi er þó að um leið og ný byggð er áformuð verði teknar frá hentugar skólalóðir á réttum stöðum, að áhrifum sé beitt til að ný skólahús verði byggð með þeim hætti að hlutverki þeirra megi breyta, jafnvel aftur og aftur, eftir duttlungum skólakerfisins og sveiflum á nemendafjölda og að við þau megi auðveldlega auka þvf að lítill vafi er á að hlutfall þess unga fólks sem kýs að stunda skólanám a.m.k. fram undir tví- tugsaldur mun fara hækkandi á komandi árum. Stórar sveiflur á nemendafjölda verða ætíð erfiðar viðfangs og eiginlega má það kallast hrein heppni að skólahúsnæði var ekki ofbyggt að neinu ráði þegar fjölgun- urbylgjan mikla skall á hér á árunum og hin stórfellda nemendafækkun fylgdi í kjölfarið um tveimur áratugum síðar. Að sjálfsögðu var ástæðan sú að engin tök voru á að fjármagna nýbyggingar skóla með þeim hraða sem til þess hefði þurft. Það sem ofbyggt kann að hafa verið á grunnskólastigi nýttist fyrir framhalds- skólar.a þegar fjölgunarbylgjan náði þangað og vel gæti þetta sama húsnæði átt eftir að nýtast grunnskólastiginu á ný síðar ef á þyrfti að halda. íbúatala Reykjavíkur nær tvöfaldaðist frá stríðsbyrjun til ársins 1962 og barna- fjöldinn enn hraðar. Um 1950 var fjölgun skólabarna svo ör að sjö ára börnin sem þá urðu skólaskyld í borginni voru nálægt helmingi fleiri en hin sem luku skólaskyldunni á sama ári. Fjölgunin á barnaskólastigi í Reykjavík nam þá að meðaltali 300 börnum á ári á tólf ára tímabili og fyrstu árin um 500 börnum á ári. Þá var t.d. Hlíðaskólinn hannaður og stærð hans ákveðin af færustu aðilum: 39 almennar kennslustofur fyrir 60 bekkjar- deildir. Nú eru í þeim skóla 17 bekkjar- deildir á grunnskólastigi og þjónar hann þó stærra hverfi en upphaflega var ráð- gert en eins og kunnugt er var hann aldrei byggður eins stór og til stóð. Þessarar fjöldabylgju gætti svo að sjálf- sögðu víðast í þjóðlífinu. í framhalds- Bygging Foldaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Skólinn er byggður úr for- steyptum einingum br. x hæð 240x690 cm. Einingarnar eru með marmarahúð og voru settar upp með glerjuðum glugg- skólunum, á háskólastigi, í húsnæðis- og atvinnumálum og nú bráðlega aftur á grunnskólastiginu, því nú eru sem sé þessir fjölmennu aldursflokkar teknir við foreldrahlutverkinu og börnum fjölgar nú verulega - í bili - í yngstu aldursflokk- um skv. íbúaskrá borgarinnar. Þessar stóru sveiflur í nemendafjölda eru lærdómsríkar og hljóta að gera skipulags- vinnu erfiða. Flestir framhaldsskólar á höfuðborgar- svæðinu eru staðsettir í Reykjavík og hafa nemendur úr nágrannabyggðum sótt þangað. Nú hin síðari ár. hefir verið komið á fót nokkrum slíkum skólum t.d. í Hafnar- um. Rifjaplötur í loftum svo og bitar og súlur eru einnig forsteypt. Skólann á að taka í notkun í haust. Arkitekt er Guð- mundur Þór Pálsson.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.