Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 11
G E S T U R
OLAFSSON
BYGGT UMHVERFI
örfáum áratugum höfum viö íslendingar
Abyggt okkur umhverfi þar sem viö búum,
vinnum og eyöum miklum hluta af tómstund-
um okkar. Víöa hefur vel til tekist, en annars
staöar höfum við byggt umhverfi sem er
bœöi illa gert, óvandaö, Ijótt og hcettulegt
°9 byggt úr byggingarefnum sem ekki þola íslenskt
veöurfar.
Hvers vegna skiptir þaö svo miklu máli hvernig að mótun
Þessa umhverfis er staðiö? Er þetta bara áhugamál
hönnuöa sem eru aö leita sér aö verkefnum? Er gott
urnhverfi bara álitamál eöa spursmál um smekk eða
físku? Er hœgt að draga úr samgöngukostnaði, slysatíöni
°9 byggingarkostnaði meö góöu skipulagi og hönnun?
Alltof oft sjáum viö ekki skóginn fyrir frjánum í þessum
efnum. Alltof oft hugsa einstakir hönnuöir bara um þá
byggingu, lóö eöa svœöi sem þeir eru aö hanna í þaö og
Það skiptiö án þess að hugsa um víöara samhengi þessa-
rar urT|Þverfismótunar. Sama máli gegnir líka alltof oft um
Þá fjölmörgu aöila sem taka þáttí þessari mótun. Á hinn
Þóginn þekkist það líka aö form bygginga og notkun sé
þaö fastbundin I skipulagi aö ekki sé rúm fyrir eölilega
þróun eöa aöra skoðun og smekk en þesssem skipulagði.
Hér sem víðar er meöalhófiö vandratað og oft freistast
þeir sem eru sérfrœðingar á einhverju einu sviði til þess aö
líta á umhverfismótun fyrst og fremst frá sínum hól. Þaö
sem okkur vantar samt fyrst og fremst til þess aö gott
byggt umhverfi geti orðið til er góð samvinna margra
frœðigreina.notenda ogstjórnmálamannameöanskipu-
lagið er á mótunarstigi. Mistök sem þar eru gerö getur
veriö mjög erfitt og dýrt að leiðrétta síöarmeir.
Byggt umhverfi skiptir okkur öll óneitanlega miklu. Því
fylgja mikil lífsgœði að búa I mengunarlausu, hœttulausu,
hagkvœmu og þœgilegu umhverfi þar sem okkur líöur
vel og öllu er haganlega fyrir komið. Alltof fáir íslendingar
búa samt viö slíkt umhverfi.
Mikillhlutiafþjóöarauðiíslendingaerbundinníþvíbyggöa
umhverfi sem nú er oröinn rammi utan um daglegt líf
okkar og starf. Því meira sem til þessa umhverfis er vandað,
því hentugra sem þaö er og því hagkvœmara í rekstri, því
meiri lífsgœða njótum við og því auðugri verðum viö sem
þjóö. Hér er ennþá mikið verk aö vinna. ■
9