Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 31
■ S' :
L.AUG ARDALUR
DEILISKIPULAG
I:2000
Skipulagsuppdráttur frá apríl 1991.
húsdýranna, einnig villt dýr: mýs, minkar, refir, hreindýr og
selir.
I garðinum er einnig aðstaða fyrir fræðslustarfsemi og eru
starfsmenn garðsins mjög áhugasamir fræðarar. Sérstök
ntóttaka er þar fyrir skóla og dagvistarstofnanir og upplagt
virðist að nýta Grasagarð og Húsdýragarð í sameiningu við
náttúrufræðikennslu.
Húsdýragarðurinn opnar sig á móti lífæð garðsins, trjá-
gongunum. Þaðan er útsýni yfir bithaga og gengið í garðinn.
Listilega hlaðinn hraungarður leiðir gestinn að selatjöminni
‘ hjarta garðsins, en umhverfi hennar er myndað úr lábörðu
storgrýti úr vegstæði Bústaðarvegar í Öskjuhlíð. Byggingar
eru látlaus timburhús, hönnuð af arkitektunum Guðmundi
Kr. Guðmundssyni og Ólafi Sigurðssyni. Rými milli byggin-
ganna mynda þægileg útivistarsvæði til ýmissa nota. Umhverfis
þessi svæði eru timburgirðingar. Stjómstöð og kennslurými er
í fyrrverandi íbúðarhúsi Örlygs Sigurðssonar listmálara, en
trjágarður hans kemur að góðum notum, m.a. sem hólf fyrir
fugla.
I hreindýrahólfinu í norðvesturhorni garðsins er lögð sérstök
áhersla á að mynda skemmtilegt landslag með grjóti og
mishæðum, segja má að gildi hönnunar komi þar greinilega í
ljós því að öll dýr sem þangað eru sett byrja strax að leika sér.
29