Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 32

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 32
áfijötcUtw, &öyutut<svi: REYKJAVIK - ÖRFIRISEY Eftirfarandi grein var upphaflega skrifuð fyrir um hálfri öld. Þá kom til tals að reisa síldarverksmiðju í Örfirisey. Nú er um það deilt hvort þar eigi að rísa beinamjölsverksmiðja. Greinin er birt hér til upprifjunar fyrir þá sem láta þetta mál sig varða. (ritstj.) Hér birtist mynd af sólarlagi í Reykjavík. Allir dást sð hinni óviðjafnanlegu fegurð, þegar sólin er að síga í æginn, enda er sólsetrið við Reykjavík orðið frægt meðal útlendinga. Á teikningunni sést mynd af sumarhóteli fyrir útlenda ferðamenn, og fslendinga, svo sem konur og böm, sem hafa ekki ástæður til að fara úr bænum um helgar, og sést straumur fólksins út Grandagarðinn. Orfirisey er þjóðlegur sögustaður, útsýni þaðan fagurt í allar áttir og heilnæmt sjávarloft, enda hafa bæjarbúar gert mikið að því undanfarið, bæði á helgum og rúmhelgum dögum, að ganga þangað sér til hressingar. Nú grúfir skuggi yfir þessum stað, sem Ingólfur nam fyrir meir en þúsund árum og Skúli fógeti gerði að höfuðstað landsins, eftir samþykkt bæjarstjórnar um að reisa síldarverksmiðju í Örfirisey. Birtist hér mynd af þeirri hugmynd sem nú er verið að hrinda í framkvæmd. Þar má sjá, að reykjarmökkurinn frá bræðslustöðinni breiðir sig fyrir kvöldsólina og sólroðið vest- urloftið. Okkur Reykvíkinga undrar það stórum, að bæjarstjóm og bæjarráð skuli leyfa sér að bera slíka grútarsamþykkt á borð fyrir íbúa höfuðstaðar okkar, sem hafa þó treyst þeim til þess að láta allt það ógert, sem gæti skaðað og niðurlægt heiður bæjarfélagsins. Hefir ríkisstjórnin enga sómatilfinningu gagnvart heiðri höfuðstaðarins, eða vald til að stöðva ósómann? Eða er það ekki hennar að taka í taumana, ef valdhafar bæjar- og sveitarfélaga gera eitthvað það, sem stofnar heiðri lands og þjóðar í voða, eða er til niðurlægingar og smánar fyrir íslenzka ríkið? Verði síldarverksmiðja starfrækt í Örfirisey, - sem þó yrði 30

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.