Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 34
arstimpil á höfuðstað landsins og þann, sem nú er verið að
smella á með þessari grútarstöð.
Þó að borgarstjórinn standi í þessu máli í broddi fylkingar,
vegna stöðu sinnar og áhrifavalds þeirra sem hafa lyft honum
í þessa stöðu, þá lítur út fyrir, að hann geri þetta ekki vegna
áhuga frá eigin brjósti. Að minnsta kosti má ætla að hann beri
skyn á, að skjöldur hans og þeirra sem þessu ráða, sé ekki alveg
hreinn í þessu máli, gagnvart íbúum bæjarins, þar sem hann
óttast, að fólk muni í framtíðinni ekki vera núverandi
ráðamönnum bæjarins þakklátt fyrir þessa ráðstöfun, sbr.
grein í Alþýðublaðinu, þann 3. sept. 1948, þar sem skýrt er frá
umræðum um þetta málefni í bæjarstjóm.
Er borgarstjóranum kannske sama um, hvað núverandi íbúar
þessa bæjar vilja í þessu máli eða sýnist um það ? Eða veit hann
ekki, að sú kynslóð, sem nú byggir þennan bæ, verður jafn-
óþakklát þeim, sem þessu stjómar, eins og hann gerir sjálfur
ráð fyrir um ókomnar kynslóðir? En það er annað, sem þessi
kynslóð getur verið þakklátari fyrir en þær, sem síðar koma, og
það er að eiga vald og hafa aðstöðu til að skipta um borgar-
stjóra og bæjarfulltrúa við næstu bæjarstjómarkosningar, og
geta með eigin hendi endurgoldið þeim gerðir sínar á viðeigandi
hátt.
Það hefði verið réttast, og er í rauninni sjálfsagt, að leitað
verði atkvæða hjá borgarbúum um þetta stórmál, ella krefjast
þegar í stað nýrra bæjarstjómarkosninga.
Orfirisey er sem lítið bam, sem Reykjavík á. Nú á þó að fóma
því fyrir hagsmuni örfárra manna. Dettur manni þá í hug atvik
eitt, er kom fyrir í ágúst síðastliðnum suður í Þýzkalandi, þar
sem í sértrúarfélagi nokkru átti að fóma tveim bömum og var
búið að binda þau á stól, þegar lögreglan kom á vettvang og
bjargaði bömunum. Þetta bam Reykjavíkur er nú búið að
binda og á nú að fóma eftir anda og innræti sértrúar-
gróðafélaga.
ÓSAMRÆMI
Samtímis því, að verið er að hefjast handa um að byggja
áðumefnda bræðslustöð í Örfirisey, hefir verið stofnað félag
um að fegra borgina. Það hefir að sj álfsögðu hlotið harða dóma
hjá þjóðinni, þegar útlendir menn, sem hingað hafa komið,
em að dæma um menningarástand Islendinga, t.d. um óþrifhað
höfuðstaðarins, sbr. grein í dagbl. Vísi í vor. En hvemig halda
menn, að dómar þeirra verði, ef höfuðstaðarbúar bæta nú gráu
ofan á svart með því að bæta við grútarstöð í Örfirisey?
Félag það, sem nú er stofanð og hlaut að lokum nafhið
„Fegrunarfélag Reykjavíkur“, hefir það á stefhuskrá sinni að
prýða og fegra höfuðstaðinn, virðist þama hafa fengið tilvalið
viðfangsefni, þ.e. að spoma við því að þessi stöð verði reist
þama. En borgarstjórinn er formaður þessa félags og hefir því
góða aðstöðu til að sjá um, að ekki verði þar unnið á móti
þessum óþrifnaði. Annars hefi ég litla trú á, að sá félagsskapur
komi að tilætluðu gagni, því að hann mun hafa lítið bolmagn
til að prýða bæinn. Til þess mun þurfa margar milljónir króna,
t.d. til þess að hreinsa í burtu gömul og illa útlítandi smáhús
og hermannaskála, og fylla svo í skörðin með nýtízku
steinhúsum.
Fé það, sem hefði átt að nota til að byggja Reykjavík sjálfa upp,
32