Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Qupperneq 35
sem fagran höfuðstað íslendinga, hefir verið notað til að hrófa
UPP timburkofum út um allt bæjarlandið, inn að Kleppi, inn
fyrir Elliðaár, upp í Mosfellssveit, eða um allt það land, sem
bærinn hefir umráð yfir. Vegna þessara bygginga hefir sjálfur
Reykjavíkurbær orðið að greiða margar milljónir umfram það,
sem annars hefði þurft. Má þar til nefna götulagningu,
skolpleiðslu, vatn, rafmagn o.fl. Ég get ekki talið, að þessar
byggingar úti um allar jarðir tilheyri Reykjavík.
Sjálf Reykjavík ætti að byggjast upp þannig, að auðsætt
rnætti vera, að hún væri sannkallaður höfuðstaður landsins.
I borginni er enn mikið af gömlum ryðguðum timburhúsum -
að ógleymdum braggahverfunum - sem þarf að rífa burtu og
byggja nýtt í staðinn. Þannig þarf að fegra bæinn.
Skólavörðuholtið var einu sinni ætlað fyrir háborg
Reykjavíkur, og má hér sjá hvernig háborgin lítur nú út.
Þannig er þetta í ótal stöðum annars staðar í bænum og
bæjarlandinu.
btu líkindi til þess að „fegrunarfélag", sem telur sér
óviðkomandi, hvað gert verður við þann hluta Reykjavíkur,
er fyrst blasir við öllum þeim, sem að borginni koma af sjó, láti
S1g meira varða þau höfuðlýti á borginni, sem hér að framan
hafa verið nefnd? Ef það fæst ekki rætt í Fegrunarfélaginu
hvort Örfirisey eigi um alla framtíð að vera prýði borgarinnar,
eins og hún gæti hæglega orðið, eða eitt mesta lýti hennar,
hvað má þá ræða þar? Ef borgarstjóra og fylgismönnum hans,
hvort sem þeir tilheyra hans flokki eða hinum, helzt það uppi
að banna umræður um það, hvort æskilegra sé, að Örfirisey
verði bæjarprýði eða grútarstöð, er þá líklegt, að þessar
lýðræðishetjur æski umræðna um hitt, hvenær gömlu borg-
arhverfin, braggahverfin og önnur stórlýti á höfuðborginni
eigi að víkja, hvenær Skólavörðuholtið eigi að hætta að vera
háborg íslenzkrar ómenningar, landi og þjóð til skammar? Það
er vitanlegt, að allar meiriháttar framkvæmdir til fegrunar
borginni kosta fé, og það fé verður að koma úr sameiginlegum
sjóði bæjarbúa, bæjarsjóði, en ekki sem enn einn aukaskattur
úr vasa þeirra.
En megi Fegrunarfélagið ekki ræða slík mál og gera sínar
tillögur og sínar kröfur um framkvæmdir fyrir hönd bæj arbúa,
án náðarsamlegs leyfis borgarstjóra, af því að slíkar
framkvæmdir kosti fé, þá verður það aldrei annað en vesæl
ambátt og skóþurrka ráðandi flokka í bæjarstjóminni, og
skálkaskjól fyrir framkvæmdaleysi þeirra eða framkvæmdir,
sem miða í þveröfuga átt við tilgang félagsins. Ef
Fegrunarfélaginu tekst ekki að koma í veg fyrir spellvirki
bæjarstjómarinnar í Örfirisey, tekst ekki að hindra, að Örfiris-
ey verði gerð að grútarstöð og öll Reykjavíkurhöfn að grútar-
polli, þá er það að engu orðið þegar í upphafi vega sinna.
Höfuðtilgangur þess hlýtur að vera sá, að vekja lifandi áhuga
allra bæjarbúa fyrir útliti borgar sinnar, koma því til leiðar, að
hver borgarbúi láti sig það nokkru skipta, hvemig útlit borgar-
innar verður í framtíðinni, fái vakandi tilfinningu fyrir því,
hvort ákveðnar framkvæmdir miða að því að fegra borgina
eða lýta hana, og hafi djörfung til að láta í ljós skoðanir sínar
á slíkum smekksatriðum, hver í sínum pólitíska flokki, ef
menn vilja og treysta því að það beri árangur, en líka gegn
sínum pólitíska flokki, ef með þarf, og gegn borgarstjóranum
33