Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 40

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 40
(HJALEIGA) \ BEÐASLETTUR R . yVrí(S; gamalt tún J < W :f n~]> .. SUÐURKÖT (HJÁLEIGA) £1*3 BÆJARHÓLL; _ =1KIRKJUGARÐUR Fornminiar. Friblýstur kirkjugar&ur og fri&lýstur bæjarhóll 20 m. friðhelg umgjöró um friölýstar minjar. NORÐURKOTSVOR LAUGARNES ^ } • norðurkot (hjaleiga) Laugarnesið. Umhverfis hinar friðlýstu minjar er 20 metra friðuð umgjörð. steypts menningarlandslags. Ljóst er að best fer á því að skipuleggja svæðið með tilliti til náttúru og sögu staðarins. Það er best gert með því að undirstrika hið ósnortna, landslag með snyrtilegu og hófsömu skipulagi svæðisins þar sem minj ar og náttúrufar fá notið sín. LAUGARNES N áttúrufar og fagurt útsýni í samspil i við fomminj ar sögufrægs höfuðbýlis gera Laugamesið að dýrmætu menningarlands- svæði, sem mjög mikilvægt er að varðveitt verði sem samstæð heild. A Laugamestánni var landnámsjörðin Laugames, sem getið er um í Njálu. Á landnámsöld mun Ragi sonur Olafs hjalta hafa eignast Laugamesið, en hann mun hafa numið land fast á hæla Skalla'Gríms. Eftir því sem Njáls saga hermir hefur Laugarnes því orðið sjálfstæð jörð nokkrum áratugum eftir að land byggðist. Þar segir að Þórarinn Ragabróðir, sem var lögsögumaður eftir Hrafh Hængsson, hafi búið £ Laugarnesi. Þórarinn fór með lögsögu 950-969. Mágkona Þórarins, Hallgerður Höskuldsdóttir, betur þekkt undir viðumefninu langbrók, mun hafa búið £ Laugamesi og þaðan lagt upp f ferð til Þingvalla þar sem hún er sögð hafa hitt fyrir Gunnar á Hlfðarenda. Munnmæli herma að hún hafi flust aftur £ Laug- ames eftir vfg Gunnars og borið þar beinin, sbr. ömefnið Hallgerðarleiði. Legstaðurhennarer talinnhafaverið fhinum friðlýsta Laugameskirkjugarði eða utan hans við gatnamót Laugamesvegar og Kleppsvegar. Kirkja var risin í Laugamesi um 1200 samkvæmt kirknatali Páls biskups Jónssonar, en var formlega lögð niður 1794- Fjórar hjáleigur voru í landi Laug- amess og eru rústir þeirra sýnilegar við Norðurkot, Suðurkot og Bamhól. Fjórða hjáleigan er talin hafa verið við sjálfan Laugamesbæinn. Á 19. öldinni var biskupssetur á Laugamesi. Steingrímur biskup reisti þar embættisbústað handa biskupi árið 1824 og voru kvaddir til verksins danskir iðnaðarmenn. Húsið varhið veglegasta að útliti eins og sjá má á mynd eftir A. Mayer úr Islandsleiðangri Gaimards árið 1836. Húsið var þó sagt bæði illa byggt og lekt. Laugamesstofa var svipuð Viðeyjarstofu að útliti, en þó minni og með stórum kvisti á framhlið. Árið 1838 keypti konungur Laugames og stóð til að þar yrði áfram

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.