Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 41

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 41
biskupssetur. Helgi G. Thordersenbiskup flutti til Reykjavíkur árið 1856. Laugamesstofa fór þá í niðurníðslu og var yfirgefin til 1871 er frönskum bólusóttarsjúklingum var komið þar fyrir. Nokkrir sjóliðanna létust og voru jarðsettir í kirkjugarðinum. Arið 1885 keypti Reykjavíkurbær Laugarnes og 1898 reistu danskir Oddfellowar holdsveikraspítala í Laugamesi. Laugar- nesstofa var þá rifin. Spítalinn var stórt timburhús eins og sjá má á gömlum ljósmyndum, sem teknar voru frá Kirkjusandi. Líklegt má telja að spítalinn hafi verið stærsta hús landsins á þeim tíma. Húsið var tvílyft með stuttum álmum til endanna. Laugamesspítali stóð á flötinni austan við Listasafn Sigurjóns Olafssonar og sneri framhlið í suður. . Engin greinileg merki sjást lengur um þessar byggingar, en fullvíst má telja að jörðin geymi síðustu leifar þessa tímabils í sögu Laugarness þótt þar hafi orðið nokkurt rask vegna braggabyggðar stríðsáranna. Arið 1940 lagði breski herinn hald á spítalann. Mikið hverfi bragga reis þar allt í kring á þeim slóðum sem listasafnið nú er. Sigurjón Olafsson myndhöggvari (d. 1982) fékk til umráða einn herskála árið 1945 og setti þar upp vinnustofu sína. Það var grunnurinn að Listasafni Sigurjóns Olafssonar, sem stofnað var árið 1984- menningarsvæði Laugamesið einkennist enn af hinu gamla og óspillta svipmóti °g er strandlengj an ósnortin. Laugames er á náttúruminjaskrá °g er fjaran á Laugamestanga friðlýst. Gróður í mýrlendinu umhverfis Norðurkotsvörina og á holtinu norðaustan við hana er meðal þess fjölbreyttasta sem finnst á Reykja- víkursvæðinu. Útsýni frá Laugarnesi er mjög fagurt og fjölbreytilegt. A Laugamesi er að finna leifar bæjarhóls Laugarnesbæjar, hjáleigukota, kirkjugarðs, túns með beðasléttum og vör. Á höfuðbóli Laugamess var stundaður búskapur allt frá 10. öld °g fram á þessa. Bændur heyjuðu tún, beittu búsmala og reru td fiskjar. Norðurkotsvörin er einstök og ein fárra slíkra sem varðveist hafa í borgarlandinu. Laugarnesbændur nýttu fjörur °g annað það sem náttúran færði þeim til nytja. Þarna var fagurt útsýni og graslendi gott. Laugames er því dæmi um vel varðveitt menningarlandslag þar sem sögulegar minjar hald- ast í hendur við náttúm og umhverfi, sem áttu stóran þátt í tttyndun þeirra. Auk þess em varðveittar í jörðu minjar frá síðari tímum á Laugamestanga. Læjarhóll Laugamesbæjarins er fremur stór og er þar varðveitt undir grassverðinum tíu alda gömul saga búskapar Laugamesbænda. Bæjarhóllinn var friðaður árið 1987 vegna serstaks minjagildis hans. Friðaðar fornminjar teljast til bjóðminja, sem sérstaka þýðingu hafa fyrir menningarsögu hlendinga, og skal slíkum friðlýstum minjum fylgja 20 metra ftiðhelgað svæði út frá ystu sýnilegu mörkum fomleifanna. Kirkjugarðurinn er fast sunnan við bæjarhólinn (sjá mynd), en algengt var að kirkjur væru gegnt bæjardyrum. Kirkjugarðurinn var friðlýstur árið 1930 af þáverandi þjóðminjaverði, Matthíasi Þórðarsyni. Hann er ferhyrndur og sést enn móta fyrir sáluhliði á vesturvegg hans. Þar má greina rúst síðustu torfkirkjunnar í miðjum kirkjugarðinum. Hún var lögð niður árið 1794 þegar Laugarnessókn var lögð undir Dómkirkjuna í Reykjavík. Kirkjan hefur verið torfkirkja með timburstafni og hefur snúið frá austri til vesturs í samræmi við kirkjulög. Enn má sjá dæmigert gamalt tún með beðasléttum frá því um aldamót vestan bæjarhólsins. Heimildir eru fyrir slíkum beðasléttum allt frá víkingaöld í nágrannalöndum okkar. I Jarðabókinni eru nefndar þrjár hjáleigur, þ.e. Norðurkot (áður Sjávarhólar), Suðurkot og Barnhóll.(sjá teikn.) Fjórða kotið er ekki nafngreint en mun hafa staðið heima við bæinn. Enn sést móta fyrir þrem fyrst nefndu hjáleigukotunum í Laugamesi og er mikilvægt að lögð verði áhersla á varðveislu þeirra í tengslum við sjálft bæjarstæði Laugamesbæjarins. „ENGI HORNKERLING VIL EK VERA" Út frá sjónarhorni minjaverndar er eindregið mælt gegn því að ekki kome vegur framhj á friðlýstum bæj arhól og kirkj ugarði Samkvæmt 17. gr. þjóðminjalaga (88/1989) skal „þeimminjum sem friðlýstar eru fylgja 20 m friðhelgað svæði út frá ystu sýnilegu mörkum fomleifa og umhverfis nema kveðið sé á um annað“. Við vettvangskönnun hinna friðlýstu minja kom í ljós að bæjarhóllinn nær undir núverandi vegslóða og er því ljóst aðvegur fer inn á friðhelgað svæði (sjá meðfylgjandi kort). Frá ystu mörkum kirkjugarðs eru 25 metrar að húsum tollvörugeymslunnar, en 7 metrar að Sætúni. Friðlýst svæði nær um tíu metra inn á lóð tollvörugeymslunnar. Mikilvægt er að merkar fornminjar, sem gefið hafa tilefni til friðlýsingar, séu ekki of aðkrepptar á einn eða annan hátt. Með því eiga þær á hættu að missa gildi sitt. Sem dæmi um þess konar eyðileggingu fomminja má nefna Kapelluna í Kapelluhrauni. Þar var grafið frá hinum friðlýstu minjum frá öllum hliðum og þeim því kippt úr samhengi við hið eðlilega umhverfi. Er afleitt að hinn friðlýsti bæjarhóll og kirkjugarður lendi aðkrepptur í horni breiðgatna. í Njálu kemur fram að Hallgerður langbrók hafi eitt sinn átt að hafa sagt: „Engi hornkerling vil ek vera“. Mikilvægt er að virða ósk þessarar húsfreyju í Laugarnesi, sem á svo mikinn þátt í sögu staðarins. Ljóst er að vegur frá austri á milli fjöru, Klettsvarar og hins gamla túns gæti raskað samhengi og tengslum fjöru og túns. Klettsvör við hjáleiguna Norðurkot er hluti af minjaheild Laugarnesbæjarins og því vert að leggja áherslu á að sú heild varðveitist. Ibúðabyggð á svæðinu skerðir óhjákvæmilega möguleika Laugarness sem útivistarsvæðis fyrir almenning. Umhverfi Listasafns Sigurjóns Olafssonar verður að falla vel að lands- laginu, og því mega bílastæði þar ekki verða of áberandi. Of viðamikil mannvirkjagerð gæti þrengt að Laugarnesi sem heilsteyptu menningarlandssvæði. Hugmyndin um 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.