Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 42
Horft til norðurs frá bæjarhólnum.
höggmyndagarð er góð, og getur slíkt aukið á breidd Laugar-
ness sem útivistarsvæðis ef fundið yrði jafnvægi á milli fagurs
útsýnis, náttúru og sögulegra minja annars vegar og listar hins
vegar. Höggmyndálist og vel hönnuð lýsing gætu fallið vel að
þeirri mynd og undirstrikað Laugames sem minj asvæði náttúru
og sögu. Slíkt gæti aukið þá dulúð sem nærvera sögu og
fortíðar gefur staðnum. Hið margslungna samspil sögu og
náttúru Laugamess ætti tvímælalaust að vera þungamiðja
skipulags á þessu einstaka menningarlandssvæði ímiðju borg-
arlandinu.
Á Laugamestanga varð ákveðin röskun á stríðsárunum vegna
bygginga herskála. Mannvirkin vom hins vegar byggð á
aðfluttri uppfyllingu, sem komið hefur í veg fyrir eiginlega
röskun á fomminjum. Má því búast við að mannvistarleifar
eldri byggðar hafi varðeist undir uppfyllingunni.
Sérstakt náttúrufar og fagurt útsýni tilheyra hinu foma sögubóli
Laugamess. Hjáleigurústimar, Norður- og Suðurkotsvör, túnið
með beðasléttunum og fjaran eru mikilvægir hlutar eins elsta
bæjarstæðis á Islandi, rétt eins og hinar friðlýstu minjar
bæjarhólsins og kirkjugarðsins með kirkjurústinni. Þessi atriði
eru öll hluti af samspili, sem gerir Laugamesið að heilsteyptu
menningarlandssvæði. Ometanlegt er að slíkar heildir varð-
veitist innan höfuðborgar og því mikilvægt að minjaheild
Laugamess raskist ekki. Er það mat höfundar að stuðla beri að
varðveislu Laugamess, sem heilsteypts menningarlandsvæðis
vegna ómetanlegs samspils náttúm, sögulegra minja og fagurs
útsýnis. ■
fonníYim
NIÐURHENGD
KERFISLOFT
MIKIÐ ÚRVAL
ÍSLENZKA
VERZLUNARFÉLAGIÐ
SKÚTUVOGI12C
SÍMI687550
40