Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 49

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 49
Efri teikn: Suð-austurhlið, gegnt höfninni. Neðri teikn: Norð-vesturhlið, í átt til eyjarinnar. Grunnmynd 1. hæðar. Sneiðmynd. Viðey gegnir mjög mikilvægu hlutverki í lífríki sjó- og far- fugla við innnes Faxaflóa, og að þar er jafnframt að finna ^injar um elstu búsetu á Islandi. V erkefnið miðaðist því strax í upphafi við að taka fullt dllit til sögulegs og náttúrufræðilegs gildis Viðeyjar og hafa aðalskipulag Reykjavíkur til viðmiðunar. I aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir að Viðey verði tengd við land með göngubrú frá Sundabakka að Gufunesi. Eftir að hafa leitað álits sérfræðinga á sviði náttúrufræði og fornleifafræði taldi ég rétt að miða verkefnið við að nota eingöngu báta sem samgöngutæki til að koma í veg fyrir of tnikinn ágang á eyjuna. Með þetta í huga var ráðstefnu- miðstöðinni líka valinn staður við Sundabakka á suð-austur enda Viðeyjar, þar sem forðum var eina höfnin á öllu Faxaflóasvæðinu sem tók á móti skipum hlöðnum komi, kolum og olíu utan úr hinum stóra heimi. Ráðstefnumiðstöðin skip- tist í 3 byggingarhluta er gegna mismunandi hlutverkum: 1. Rannsókna- og fyrirlestradeild sem búin er rannsóknaher- bergjum, mismunandi stórum fyrirlestraherbergjum, stórum fyrirlestrasal, tölvuherbergi og bókasafni. 2. Þjónustudeild með móttöku, bar, æfingasal, sundlaug og veitingasal. Deildin er ætluð almenningi jafnt sem öðrum gestum hinna deilda hússins. 3. Gistideild sem gefur möguleika á gistingu um lengri eða skemmri tíma fyrir hópa af ýmsum stærðum sem þurfa að nota rannsókna- og fyrirlestradeildina. Deildirnar 3 eru staðsettar í mismunandi byggingarhlutum 47

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.