Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 50

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 50
Líkan af ráðstefnumiðstöð. sem síðan eru bundnir saman af miðhúsi sem jafnframt er inngangur og sýningarsalur hússins. Rannsókna- og fyrirlestradeildin ásamt þjónustudeildinni eru á 1. hæð sitt hvorum megin við miðhúsið, en gistideildin er á 2. hæð. Æskilegt er að komið sé í veg fyrir að V iðey verði í framtíðinni lögð undir tjaldstæði, minigolfvelli, krár eða álíka borgar- starfsemi. Þá er ekki síður mikilvægt að koma í veg fyrir að Viðey verði það mikið friðuð að almenningi verði meinað að njóta þess sem náttúran þar hefur upp á að bjóða. Æskilegasta leiðin virðist vera sú að sameina þar sögu Islendinga sem eyþj óðar og virðingu þeirra fyrir lífríki náttúrunnar, og j afnframt reisa þar veglega ráðstefnumiðstöð fyrir hvers kyns innlend og erlend þing og ráðstefnur sem nú eru haldnar í Reykjavík, oft í mjög ónæðissömu húsnæði sem ekki er sérstaklega hannað fyrir ráðstefnuhald. Ráðstefnu-, rannsókna- og fyrirlestra- miðstöð í Viðey gæti orðið sannkölluð lyftistöng fyrir þá viðleitni Reykjavíkurborgar að efla höfuðborgina sem miðstöð fyrir hvers konar ráðstefnur og fundi. Nú, þegar við höfum vaknað til vitundar bæði um möguleika okkar á sviði ráðstefnuhalds og mikilvægi umhverfisverndunar, væri slík framkvæmd verðugt verkefni sem vafalaust myndi vekja eftirtekt á alþjóðavettvangi. Utliti ráðstefnumiðstöðvarinnar er ætlað að höfða til lögunar Viðeyjar, þyngdar bergsins og léttleika fuglanna. Ennfremur er lögð áhersla á að miðstöðin sé nútímaleg í útliti en hafi samt hafnarbrag bátalífsins yfir sér. Fyrsta hæð hússins er grafin niður að hluta til þess að mýkja upp skilin á milli eyjunnar og sjávarins. Gistideildin er þ.a.l. byggð á súlum, sem síðan mynda ca 3,5 metra bil á milli þessara byggingarhluta. Bilið er svo nýtt til þess að gefa sérstökum herbergjum á 1. hæð meiri lofthæð en annars væri mögulegt. Bogaform miðstöðvarinnar, sem á rætur sínar að rekja til hinna mörgu víka á Viðey, hefur því hlutverki að gegna að skapa nálægð í annars stóru húsi og mýkt hvað varðar form og heildarsvip. Miðstöðin er í nánum tengslum við hafnaraðstöðu sem þjónar bæði almenningi og starfsfólki hússins. Inngangur hússins er við enda miðbryggjunnar þar sem einnig er gengið upp á eyjuna. Þjónustuinngangur, sem einungis er ætlaður starfsfólki, hefur sína eigin bryggju sem staðsett er við aðaleldhús. Rannsóknadeildin á 1. hæð hefur einnig sína eigin bryggju, bátaskýli og lagerherbergi. ■ 48

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.