Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 52
r\ n 1 Ó4 þ=i
ú 1 O ■ ..EEHE ' =1 fn i
\
trdgeschoss - Haupterschl:
ingsebene
\ ,
i
áhrif. Til dæmis má nefna húsaröðina í Lækjarbrekkunni
ásamt Stjómarráðinu og umgjörð nýja Seðlabankans, sem
fylgja fæti holtsins niður við kvosina. Gömlu húsin í Lækjar-
brekkunni standa aðeins ofar, en samkvæmt gamalli hefð
voru stór tún fyrir framan þau, sem færðu húsin frá læknum,
er markar í dag greinileg skil á milli holts og kvosar í formi
götu. Eins má nefna sveig Hafnarstrætisins, sem myndaði
á fyrstu árum borgarinnar jaðar Miðbæjarins í fjöru kvos-
arinnar, er tengdi holtin í austri og vestri.
Stjómarfarslegar aðstæður, sem mótandi þættir, eru mis-
munandi auðlesnar út úr heildinni; hér er það frekar söguleg
þekking, sem veitir viðkomandi svör. Það má geta sér til um
að stjómskipun fyrri tíma á Islandi hafi lagt sitt af mörkum
varðandi skipulag seinni tíma.
Til að mynda má nefna Amarhólinn, sem alveg frá upphafi
bæjarmyndunar hefur fengið að liggja svo til óáreittur allt
fram til dagsins í dag, en hann var hluti af þeirri lóð, sem
umlukti núverandi Stjómarráðshús, er tilheyrði í þá tíð
embætti Danakonungs. Svo óáreittur hefur hóllinn verið að
ekki einu sinni hefur verið hlúð að honum gagnvart umhverfi
hans, sem á liðnum og á komandi ámm verður alltaf áleitnara.
Framtíðaráform varðandi umferð þessa svæðis munu rétta
margt við, en í leiðinni skapa galla eins og til dæmis fyrir
Arnarhólinn. Arnarhóllinn hefur fram til þessa verið
aðalvettvangur fjölmargra útihátíða, en í framtíðinni munu
stór gatnamót við rætur hólsins keppa um áheyrenduma.
50